LeBron James meiddist á öxl 13. október 2007 11:46 LeBron James NordicPhotos/GettyImages
Sex leikir voru á dagskrá á undirbúningstímabilinu í NBA deildinni í nótt. LeBron James þurfti að fara af velli meiddur á öxl þegar lið hans Cleveland tapaði fyrir Seattle. Seattle hafði sigur 96-90 og var það fyrsti sigur PJ Cerlesimo sem þjálfari Seattle. LeBron James þurfti að fara af velli í þriðja leikhluta hjá Cleveland en hafði þá skorað 14 stig. Chris Wilcox skoraði 20 stig fyrir Seattle, en nýliðinn Kevin Durant náði sér ekki á strik og hitti aðeins úr 5 af 22 skotum utan af velli. Hann skoraði 15 stig og hirti 7 fráköst. Miami tapaði þriðja leiknum í röð á undirbúningstímabilinu þegar liðið steinlá 102-69 fyrir grönnum sínum í Orlando. Shaquille O´Neal og Dwyane Wade léku ekki með Miami og JJ Redick skoraði 19 stig fyrir Orlando í leiknum og klikkaði aðeins á einu skoti. Dallas vann auðveldan sigur á Dallas 100-92 í beinni á NBA TV. Josh Howard skoraði 18 stig fyrir Dallas og Luol Deng sömuleiðis fyrir Chicago. Utah skellti Detroit 100-85 þar sem Ronnie Brewer skoraði 18 stig fyrir Jazz og þeir Paul Millsap og Deron Williams skoruðu 15 stig hvor. Jarvis Heyes skoraði 16 stig fyrir Detroit. New Jersey lagði Philadelphia 91-90 eftir framlengdan leik. Bostjan Nachbar skoraði 35 stig fyrir New Jersey og Antoine Wright 17, en Louis Williams skoraði 33 stig fyrir Philadelphia og Rodney Carney var með 15 stig. Loks vann Denver sigur á Portland 118-102 þar sem Carmelo Anthony skoraði 22 stig fyrir Denver en Martell Webster skoraði 19 stig og Travis Outlaw 18 fyrir Portland. Í nótt verður bein útsending á NBA TV frá leik Indiana og Seattle á undirbúningstímabilinu og hefst hann klukkan 23. Annað kvöld verður svo sýnt beint frá leik Detroit og Denver og hefst sá leikur um klukkan 22.
NBA Mest lesið Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Elísa meðal tíu efstu á EM í utanvegahlaupum Sport Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan Fótbolti Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada Fótbolti Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Fótbolti Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Fótbolti Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Enski boltinn Byrjaði mótið með enga styrktaraðila og áhyggjur af hótelkostnaði Sport Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Fótbolti Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira