Walcott gæti byrjað í kvöld 23. október 2007 11:01 NordicPhotos/GettyImages
Líklegt þykir að framherjinn ungi Theo Walcott verði í fyrsta sinn í byrjunarliði Arsenal í Meistaradeildinni í kvöld þegar liðið tekur á móti Slavia Prag í H-riðli. Hinn 18 ára gamli Walcott fór mikinn þegar hann kom inn sem varamaður gegn Bolton um helgina og þá er líklegt að Tomas Rosicky gæti komið inn í liðið eftir að hafa jafnað sig af meiðslum á læri. Robin van Persie og Philippe Senderos eru enn meiddir hjá Arsenal. Slavia verður án þeirra Vladimir Smicer, Martin Latka og Erich Brabec sem allir eru meiddir. "Ef við náum sigri í kvöld verður 90% af vinnu okkar í riðlakeppninni lokið. Þessi leikur verður góður prófsteinn á andlegan styrk liðsins og það verður gaman að sjá hvernig leikmennirnir eiga við það að vera taldir auðveldir sigurvegarar fyrir fram. Það eru nefnilega stundum þessir leikir sem eru erfiðastir þegar á hólminn kemur og við gætum lent í miklum vandræðum ef við höldum ekki einbeitingu í þessum leik," sagði Arsene Wenger. Arsenal hefur aldrei spilað við Slavia Prag í Evrópukeppni, en liðið hefur unnið alla sex leiki sína gegn grönnum þeirra í Spörtu frá Prag. Hópur Arsenal: Almunia, Lehmann, Sagna, Toure, Gallas, Clichy, Hleb, Fabregas, Flamini, Diaby, Adebayor, Eduardo, Eboue, Walcott, Gilberto, Rosicky, Bendtner, Denilson.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Íslenski boltinn Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Körfubolti Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Íslenski boltinn Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Körfubolti Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Enski boltinn Sara Björk snýr heim í Hauka Íslenski boltinn Stelpurnar okkar hálfa leið á HM með sigri Fótbolti Fleiri fréttir Grikkir gerðu Svíum grikk á lokasekúndum leiksins Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Óvíst hver tekur við af Schmeichel Sara Björk snýr heim í Hauka FIFA tók U-beygju og bannar vatnsflöskur „Eins og fjölskylda í sólarlandaferð“ Stelpurnar okkar hálfa leið á HM með sigri „Þetta voru ótrúlegir dagar, en líka alveg magnaðir dagar“ „Það vill enginn í hópnum sjá hann fara“ Stelpurnar okkar ekki sammála um hverjir vinna HM Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Ögmundur laus allra mála hjá Val HM-minning: Leið yfir móður hans þegar hún fékk fréttirnar Jelena kölluð inn í landsliðið Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Er búinn að glíma við þunglyndi Nottingham Forest hafnar tilboði Manchester City „Stúkan er of þögul“ ÍBV riftir samning Filip Stuparevic Tryggði sigurinn með glæsimarki Danir andlausir gegn Kongó Lofar nýjum stjörnuleikmanni í Real Madrid á morgun Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur Messi æfði einn viku fyrir Íslandsleikinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Sjá meira