Ofurlið Chicago féll líka fyrir Orlando 19. nóvember 2007 09:52 Jordan, Pippen og Rodman máttu líka sætta sig við sitt fyrsta tap gegn Orlando fyrir 12 árum NordicPhotos/GettyImages
Mikið hefur verið rætt um góða byrjun Boston Celtics í NBA deildinni í haust en liðið tapaði sínum fyrsta leik fyrir Orlando í nótt. Sumir voru byrjaðir að líkja liði Boston við ógnarsterkt lið Chicago Bulls sem vann 72 leiki í deildarkeppninni fyrir 12 árum. Þetta Chicago-lið, með Jordan, Pippen, Kukoc og Rodman innanborðs, setti met með þessum 72 sigurleikjum leiktíðina 1995-96. Það var líka Orlando sem var á sínum tíma fyrsta liðið til að leggja þetta Chicago-lið árið 1995. Fyrir 12 árum og fimm dögum var lið Chicago með 5-0 árangur í deildinni þegar það fór til Orlando og tapaði 94-88 þar sem Penny Hardaway skoraði 36 stig fyrir Orlando en Michael Jordan skoraði 23 stig fyrir Chicago. Þeir sem eru að leita eftir öðru eins tímabili hjá Boston nú, geta leikið sér að því að bera saman árangur þessara liða það sem eftir lifir veturs, en þá má Boston augljóslega ekki tapa mörgum leikjum fram á vorið. Chicago liðið vann nefnilega 41 af fyrstu 44 leikjum sínum í deildarkeppninni fyrir 12 árum. Fyrir þá sem vilja bera saman árangur liðanna til þessa er hægt að smella hér og fylgjast með gengi Boston nú og goðsagnakenndu meistaraliði Chicago fyrir 12 árum.
NBA Mest lesið Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Elísa meðal tíu efstu á EM í utanvegahlaupum Sport Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan Fótbolti Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada Fótbolti Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Fótbolti Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Fótbolti Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Enski boltinn Byrjaði mótið með enga styrktaraðila og áhyggjur af hótelkostnaði Sport Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Fótbolti Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira