Jackson framlengir við Lakers 30. nóvember 2007 18:41 Phil Jackson er ekki búinn að segja sitt síðasta í NBA og stefnir á að ná í 10. titilinn áður en hann hættir NordicPhotos/GettyImages
Phil Jackson, þjálfari LA Lakers í NBA deildinni, tilkynnti í gær að hann væri búinn að samþykkja að framlengja samning sinn við félagið til tveggja ára. Hann verður því á mála hjá Lakers út leiktíðina 2010. Jackson verður ekki á neinum sultarlaunum á samningstímanum og fær tæpan einn og hálfan milljarð króna næstu tvö árin. Jackson hefur því halað inn um fimm milljarða króna hjá Lakers þegar þessi samningur rennur út. Hann stýrði liðinu á fimm ára og 30 milljón dollara samningi árin 1999-2004 og fékk annan eins samning fyrir aðeins þrjú ár árið 2005 en sá samningur var að renna út nú. Jackson var spurður að því hvort hann gæti séð fyrir sér að framlengja enn á ný eftir að nýi samningurinn rennur út. "Ég veit það ekki - það er erfitt að segja. Ég er að verða svo gamall að ég er hættur að skilja hvað þessir ungu menn eru að segja," sagði Jackson í gamansömum tón. "Ætli ég haldi ekki áfram á meðan líkami og sál endast í þessu," sagði Jackson, sem vann sex meistaratitla með Chicago Bulls á síðasta áratug og svo þrjá til við bótar hjá Lakers upp úr aldarmótunum. Aðeins Jackson og Red Auerbach heitinn hjá Boston geta státað af öðrum eins árangri í sögu NBA deildarinnar.
NBA Mest lesið Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Elísa meðal tíu efstu á EM í utanvegahlaupum Sport Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan Fótbolti Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Enski boltinn Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada Fótbolti Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Fótbolti Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Fótbolti Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Fótbolti Byrjaði mótið með enga styrktaraðila og áhyggjur af hótelkostnaði Sport Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira