Sýning, leikrit og kvikmynd Ásdísar 4. september 2008 06:00 Litadýrð Brot úr verki eftir Ásdísi Sif Gunnarsdóttur.
Myndlistarkonan Ásdís Sif Gunnarsdóttir opnar sýninguna „Appelsínurauði eldurinn sem þú sýndir mér í Hljómskálagarðinum“ í Kling og Bang galleríi, Hverfisgötu 42, á laugardagskvöld kl. 20. Sama kvöld, á sama stað, frumsýnir Ásdís Sif sjónræna leikritið „Fallegi, viðkvæmi konungdómur þinn“ í leikstjórn Guðrúnar Ásmundsdóttur. Gísli Galdur sér um tónlistina. Ásdís Sif útskrifaðist með meistaragráðu í myndlist frá UCLA í Los Angeles. Hún hefur sýnt víða hérlendis sem erlendis; á þessu ári hefur hún meðal annars sýnt verk í New York, Berlín, Calgary, París, Brussel og Glasgow, auk Reykjavíkur. Sýningin í Kling og Bang stendur til 28. september, en þá verður henni lokað með miklum tilþrifum. Það er annars nóg um að vera hjá Ásdísi um þessar mundir; auk sýningarinnar í Kling og Bang frumsýnir hún ásamt Ingibjörgu Magnadóttur mynd í fullri lengd sem nefnist „Háveruleiki“ annað kvöld kl. 18 í Regnboganum á Hverfisgötu. - vþ
Mest lesið Ein glæsilegasta leikkona landsins á lausu Lífið Stjörnulífið: Skúli og Gríma orðin hjón Lífið Fjörutíu ára draumur Guðmundar rættist Lífið Þaggar niður í orðrómi um sambandsslit Lífið Enginn fær að skipta sér af tónlist Laufeyjar Tónlist Gamlir samherjar funduðu á fiskistað Lífið „Maður getur þakkað íslenskum bókmenntum fyrir H.C. Andersen“ Lífið Fróði og Gandálfur snúa aftur í leitinni að Gollri Bíó og sjónvarp „Ég hef verið mikill kvíðasjúklingur alveg síðan ég var barn“ Lífið WikiLeaks og aðför stórvelda: Uppljóstrun aldarinnar undirbúin í Reykjavík Lífið Fleiri fréttir Ráðin nýr verkefnastjóri menningar í Kópavogi Ljósbrot tilnefnd til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs Syrgir gamla íslenska skyrið: „Nánast með verstu menningarglæpum okkar sögu“ Kolfinna leikstýrir kærastanum í annað sinn Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira