Chris Paul framlengir við Hornets 4. júlí 2008 11:02 Chris Paul átti stórkostlega leiktíð í vetur sem leið NordcPhotos/GettyImages
Leikstjórnandinn Chris Paul hefur skrifað undir nýjan samning við New Orleans Hornets í NBA deildinni. Samningurinn tekur gildi eftir næsta tímabil, er til þriggja ára með möguleika á fjórða árinu og greiðir honum ríflega fimm milljarða króna í tekjur. Paul sprakk út á sínu þriðja ári í deildinni síðasta vetur. Hann skoraði rúmt 21 stig að meðaltali í leik og leiddi deildina í stoðsendingum (11,6) og stolnum boltum (2,7). Frammistaða hans tryggði honum sæti í hans fyrsta stjörnuleik og þá er hann í landsliði Bandaríkjanna fyrir Ólympíuleikana. New Orleans kom liða mest á óvart í deildinni síðasta vetur og margir vilja meina að góður leikur Paul hafi ekki aðeins verið lykillinn að velgengni liðsins heldur orðið til þess að halda lífi í körfuboltanum í borginni eftir hamfarirnar þegar fellibylurinn Katrín gekk yfir svæðið fyrir tæpum þremur árum. Þannig hafa þegar verið seldir meira en 5,000 fleiri ársmiðar á leiki Hornets næsta vetur ofan á þá ríflega 5,000 sem þegar voru fráteknir frá síðasta vetri.
NBA Mest lesið Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Elísa meðal tíu efstu á EM í utanvegahlaupum Sport Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Enski boltinn Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Enski boltinn Byrjaði mótið með enga styrktaraðila og áhyggjur af hótelkostnaði Sport Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Körfubolti Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Enski boltinn Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Fótbolti Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira