Mun bera nafnið Lass aftan á treyjunni Elvar Geir Magnússon skrifar 22. desember 2008 17:15 „Lass" í búningi Real Madrid í dag.
Spænska stórliðið Real Madrid kynnti Lassana Diarra til leiks í dag eftir að leikmaðurinn stóðst læknisskoðu. Real Madrid borgar Portsmouth 20 milljónir punda fyrir Diarra. Þessi 23 ára franski miðjumaður hefur samþykkt samning til fjögurra og hálfs árs. Hann verður formlega orðinn leikmaður Real Madrid þegar félagaskiptaglugginn opnar 1. janúar. „Ég tel mig hafa þau gæði sem til þarf. Ég þarf að aðlagast spænska boltanum og gera það sem fyrst. Ég hef spilað með stórliðum, er með reynslu frá franska landsliðinu og hef enn metnað til að bæta mig," sagði Diarra. Diarra er oft líkt við Claude Makelele sem einnig lék með Real Madrid. „Við erum líkir að ýmsu leyti en Makelele er Makelele og ég er ég. Ég kem hingað sem Lassana Diarra og er ákveðinn í að sýna hvað ég get," sagði Diarra sem mun bera nafnið „Lass" aftan á treyju sinni hjá Real Madrid. Ástæðan er sú að í herbúðum Real Madrid er annar sem ber nafnið Diarra, Mahamadou Diarra. Diarra hóf feril sinn hjá Le Havre en gekk til liðs við Chelsea 2005. Hann fór til Arsenal á lokadegi félagaskiptagluggans í ágúst 2007 en stoppaði stutt við og var kominn til Portsmouth fimm mánuðum síðar. Tony Adams, knattspyrnustjóri Portsmouth, mun fá hverja einustu krónu af sölunni á Diarra til að kaupa fleirileikmenn. „Allar ákvarðanir hjá félaginu fara í gegnum mig og þegar Real Madrid bauð mikinn pening fyrir þennan leikmann kom ákvörðun sem ég þurfti að taka," sagði Adams.
Spænski boltinn Mest lesið Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ Körfubolti Uppgjörið: Álftanes - Höttur 111-77 | Meistaraefnin fóru illa með Hött Körfubolti Sluppu við herskyldu en fögnuðu of mikið Fótbolti Uppgjörið: Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Körfubolti Mótherji Eriku kastaði dós í hana Sport Slátturvél tók á loft í Svíþjóð Sport Uppgjörið: Sindri - ÍR 91-97| ÍR hélt út óvæntan spennutrylli í restina Körfubolti „Ótrúlegt að hann sé tveimur árum eldri en ég“ Körfubolti „Annars er mér bara fokking drullusama“ Körfubolti Fleiri fréttir Sluppu við herskyldu en fögnuðu of mikið Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ceferin ætlar sér að stýra UEFA áfram Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Varaforsetinn mildar afstöðu sína gagnvart Infantino Eins og óendurgoldin ást „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Sjá meira