James útilokar ekki að fara frá Cleveland 19. nóvember 2008 18:19 LeBron James er eftirsóttasti körfuboltamaður heimsins AFP
Ofurstjarnan LeBron James hjá Cleveland Cavaliers í NBA deildinni segist ekki geta lofað því að hann muni semja við lið sitt á ný árið 2010 þegar samningur hans rennur út. Fjölmiðlamenn í Bandaríkjunum hafa mikið reynt að þröngva James til að gefa svar með framtíðina, en hann hefur hingað til gefið frekar loðin svör. "Maður verður að hugsa um sinn hag og sinn feril. Ég legg mig allan fram á hverju kvöldi fyrir þetta lið - og það er hollusta í mínum huga," sagði James þegar hann var spurður hvort hann ætlaði að sýna heimaliði sínu hollustu og semja við það á ný. James á enn tvö ár eftir af samningi sínum en því hefur lengi verið haldið fram að hann myndi leita annað ef honum þætti Cleveland ekki vera með lið sem hefði burði til að keppa um meistaratitilinn. "Bransinn er þannig að ef leikmaður fer frá félagi sínu, lítur hann oft illa út. Enginn segir hinsvegar neitt þegar félögin losa sig við leikmenn. Menn verða því að hugsa um hvað er þeim fyrir bestu. Í augnablikinu hugsa ég ekki um neitt annað en liðið mitt og að vinna titil með því," sagði James. Hann varð í nótt sem leið yngsti leikmaðurinn í sögu NBA til að skora 11,000 stig á ferlinum, en hann er enn ekki orðinn 24 ára gamall. James er almennt talinn einn besti ef ekki besti leikmaður deildarinnar og skorar 30 stig, hirðir 8 fráköst og gefur 7 stoðsendingar að meðaltali í leik. Talið er víst að mörg af liðum deildarinnar séu nú þegar farin að undirbúa sig undir að gera honum risatilboð þegar hann losnar undan samningi eftir tvö ár.
NBA Mest lesið Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Elísa meðal tíu efstu á EM í utanvegahlaupum Sport Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Enski boltinn Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Enski boltinn Byrjaði mótið með enga styrktaraðila og áhyggjur af hótelkostnaði Sport Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Körfubolti Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Enski boltinn Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Fótbolti Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira