NBA veisla á Stöð 2 Sport í vetur 14. nóvember 2008 13:11 LeBron James og stjörnurnar í NBA verða tíðir gestir á Stöð 2 Sport í allan vetur NordicPhotos/GettyImages
Stöð 2 Sport mun gera NBA körfuboltanum betri skil en nokkru sinni áður í vetur. Boðið verður upp á fleiri beinar útsendingar bæði frá deildakeppni og úrslitakeppni og þá verður þátturinn NBA Action tekinn til sýninga á ný. Stöð 2 Sport verður með fyrstu beinu útsendinguna frá NBA föstudaginn 28. nóvember þegar Phoenix tekur á móti Miami klukkan eitt eftir miðnætti. Rúsínan í pylsuendanum í desember verður án efa risaleikur LA Lakers og Boston Celtics klukkan 22 á jóladagskvöld, en þar mætast liðin sem léku til úrslita í deildinni á síðustu leiktíð. Í vetur verða fleiri beinar útsendingar frá deildakeppninni en verið hefur áður og einnig verður bætt við beinum útsendingum frá úrslitakeppninni. Stjörnuleikurinn í febrúar verður að sjálfssögðu á sínum stað og þá verða allir leikir úr lokaúrslitunum næsta sumar sýndir beint eins og verið hefur. Þá ættu margir að gleðjast yfir því að stöðin mun á ný taka upp sýningar á þættinum vinsæla NBA Action sem var á dagskrá hér á árum áður. Fyrsti þátturinn verður á dagskrá þann 27. nóvember. Þar er um að ræða vikulegan þátt þar sem farið er yfir helstu tilþrif vikunnar í deildinni. Hann verður sýndur á fimmtudögum og endursýndur á föstudögum og sunnudögum. Beinar útsendingar til áramóta eru: 28. nóvember Miami - Phoenix kl. 01:00 (föstudagur) 7. desember New York - Detroit kl. 17:00 (sunnudagur) 19. desember Miami - LA Lakers kl. 01:00 (föstudagur) 25. desember LA Lakers - Boston kl. 22:00 (fimmtudagur-jóladagur) 28. desember New York - Denver kl. 18:00 (sunnudagur)
NBA Mest lesið Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Elísa meðal tíu efstu á EM í utanvegahlaupum Sport Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Enski boltinn Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Enski boltinn Byrjaði mótið með enga styrktaraðila og áhyggjur af hótelkostnaði Sport Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Körfubolti Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Enski boltinn Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Fótbolti Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira