Menning

Táknmyndir í bókasafni

Grófarhúsið á Tryggvagötu hýsir aðalsafn Borgarbókasafnsins og sýningu Stefáns-Þórs.
Grófarhúsið á Tryggvagötu hýsir aðalsafn Borgarbókasafnsins og sýningu Stefáns-Þórs.

Sýningin Táknmyndir úr tilverunni stendur nú yfir í Aðalsafni Borgarbókasafns Reykjavíkur, Tryggvagötu 15. Á sýningunni má sjá verk eftir myndlistarmanninn Stefán-Þór, en í verkunum tekst hann á við táknmyndir hinna ýmsu trúarbragða heimsins. Bjarki Bjarnason ritar texta í sýningarskrá sýningarinnar, en í honum segir meðal annars: „Lífsganga okkar er vörðuð táknum því vart er hægt að komast í gegnum hið daglega líf án þess að skilja tákn, túlka þau og nota. Umferðarljós eru tákn og tölur og bókstafir hafa táknrænt gildi, svo dæmi séu tekin.

En utan hins hversdagslega hrings eru táknmyndir sem eru hlaðnar dýpri merkingu og hafa trúarlega og heimspekilega skírskotun. Og þegar grannt er skoðað eru slík tákn ekki síður mikilvæg á vegferð lífsins en götuvitar og verðmiðar því þau hafa leynt og ljóst áhrif á hugsun okkar og lífsstefnu."



Stefán-Þór sýnir á bókasafninu hvorki meira né minna en 65 verk sem öll tengjast trúarbrögðum og lífsspeki á einhvern hátt. Sýningin stendur fram til 20. júlí.- vþ






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.