Vongóður um að handbolti.is haldi lífi 19. maí 2008 14:29 Hlynur Sigmarsson hefur verið öflugur í fréttaskrifum á handbolti.is Mynd/E.Stefán
Hlynur Sigmarsson hefur verið mikið í umræðunni í kring um handboltann síðustu daga, en hann ákvað um helgina að hætta afskiptum af handbolta eftir tap fyrir Guðmundi Ingvarssyni í formannsslagnum í HSÍ. Hlynur hefur verið aðalsprautan á bak við vefsíðuna handbolti.is undanfarin misseri, en í þættinum Skjálfanda á X-inu 977 í hádeginu tilkynnti Hlynur að hann hyggðist hætta skrifum á handbolti.is. Það yrði væntanlega reiðarslag fyrir síðuna, þar sem Hlynur hefur haldið úti megninu af öflugum skrifum þar og hefur boðið upp á lífleg viðtöl og myndbönd úr handboltanum. Vísir hafði samband við Hlyn í dag og spurði hann hvort þetta þýddi að handbolti.is myndi lognast út af. "Ég hef haft mjög gaman af þessu en með breyttum aðstæðum hefði maður viljað skoða einhverja aðra fleti á þessu. Ég er reyndar búinn að setja nokkra peninga í þetta, þannig að ég verð að skoða hvernig ég tek á þessu," sagði Hlynur. Hann segir nokkra aðila hafa sett sig í samband með það fyrir augum að leggja til efni á síðuna. "Það verður að vera skipulag á þessu. Það eru nokkrir menn sem sýnt hafa áhuga og ég verð að kanna hvort er hægt að halda þessu áfram. Það er auðvitað slæmt ef síðan hættir, en maður á aldrei að segja aldrei." En hefur Hlynur þá skrifað sína síðustu frétt á handbolti.is? "Maður veit aldrei. Ég á nú örugglega eftir að kveðja. Ég verð bara að sjá til," sagði Hlynur.
Olís-deild karla Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Finnur til með Arnari Handbolti Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Íslenski boltinn Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sport Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Enski boltinn Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Íslenski boltinn „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Íslenski boltinn Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Enski boltinn Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Íslenski boltinn Fleiri fréttir FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Sjá meira