Indiana skellti meisturunum 2. nóvember 2008 12:43 Danny Granger skorar hér í leiknum gegn Boston í nótt NordicPhotos/GettyImages
Fjórtán leikir voru á dagskrá í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Óvæntustu úrslit kvöldsins voru líklega stórsigur Indiana á meisturum Boston 95-79. Danny Granger fór fyrir liði Indiana með 20 stig en Kevin Garnett var með 18 stig og 14 fráköst hjá Boston sem tapaði sínum fyrsta leik í deildinni. Atlanta byrjar leiktíðina 2-0 í fyrsta skipti í áratug eftir 95-88 sigur á Philadelphia. Thaddeus Young skoraði 22 stig fyrir Philadelphia en Joe Johnson var frábær hjá Atlanta og setti 35 stig. New Orleans lagði Cleveland 104-92. Zydrunas Ilgauskas skoraði 18 stig fyrir Cleveland og LeBron James var með 15 stig og 13 stoðsendingar, en Chris Paul var atkvæðamestur hjá New Orleans með 24 stig og 15 stoðsendingar og David West skoraði 25 stig. Houston vann þriðja leikinn í röð þeagr það lagði Oklahoma 89-77. Tracy McGrady skoraði 22 stig fyrir Houston en Kevin Durant 26 hjá Oklahoma. LA Lakers vann sömuleiðis þriðja leikinn í röð í upphafi leiktíðar með því að leggja Denver á útivelli 104-97. Kobe Bryant skoraði megnið af 33 stigum sínum í síðari hálfleik þegar Lakers stakk af og tryggði sér sigur. Anthony Carter var stigahæstur hjá Denver með 20 stig en Carmelo Anthony spilaði sinn fyrsta leik í vetur fyrir liðið eftir að hafa verið í banni í fyrstu tveimur. Hann náði sér aldrei á strik og skoraði 13 stig líkt og Allen Iverson. Phoenix lagði Portland 107-96. Amare Stoudemire skoraði 23 stig og hirti 13 fráköst fyrir Phoenix en Brandon Roy og Rudy Fernandez settu 20 hvor fyrir Portland. Önnur úrslit í nótt urðu þau að Orlando lagði Sacramento 121-103, Charlotte lagði Miami 100-87, Detroit lagði Washington 117-109, Golden State lagði New Jersey á útivelli 105-97, Dallas lagði Minnesota úti 95-85, Toronto skellti Milwaukee úti 91-87 og Utah lagði Clippers heima 101-79.
NBA Mest lesið Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Elísa meðal tíu efstu á EM í utanvegahlaupum Sport Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Enski boltinn Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Enski boltinn Byrjaði mótið með enga styrktaraðila og áhyggjur af hótelkostnaði Sport Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Fótbolti Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Körfubolti Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Enski boltinn Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira