Viðskipti innlent

Víðfeðm verðbólga

Björn Rúnar Guðmundsson, hagfræðingur hjá greiningardeild Landsbankans, segir að eftirspurn frá nýmarkaðshagkerfum sé farið að hafa verðhækkunaráhrif á markaði. markaðurinn/anton
Björn Rúnar Guðmundsson, hagfræðingur hjá greiningardeild Landsbankans, segir að eftirspurn frá nýmarkaðshagkerfum sé farið að hafa verðhækkunaráhrif á markaði. markaðurinn/anton

„Verðbólga er á uppleið í heiminum vegna hækkunar á hrávörum sem á einn eða annan hátt tengist hækkun olíuverðs,“ segir Björn Rúnar Guðmundsson, hagfræðingur hjá greiningardeild Landsbankans.

Björn telur að aukin eftirspurn frá Asíu og öðrum nýmarkaðshagkerfum sé farin að hafa verðhækkunaráhrif þar sem fleiri og fleiri vilja nota olíu en á sama tíma eykst framboð ekki jafnhratt. Hann bendir jafnframt á að olía er notuð við framleiðslu margra afurða og þegar olíuverð tvöfaldast á jafnskömmum tíma þá hefur það víðtæk áhrif á hagkerfi heimsins.

Spurður um stöðu Íslands segir Björn að hagkerfið hafi fengið óvenjusnöggan viðsnúning í efnahagslífinu og þá sérstaklega á gjaldeyrismarkaði sem hefur haft mikla verðbólgu í för með sér sem kemur til viðbótar alþjóðlegum verðhækkunum á hrávörum.

Markaðsaðilar virðast tengja Ísland og verðbólgu saman um þessar mundir. Bloomberg-fréttaveitan setti Ísland nýverið á lista ásamt Úkraínu, Víetnam og Ungverjalandi yfir lönd þar sem fjárhagslegum stöðugleika er ógnað af stjórnlausri verðbólgu.

Tólf mánaða verðbólga mældist 12,7 prósent í júní og hefur ekki mælst meiri frá því í ágúst árið 1990. Hagstofa Íslands gefur út nýjar tölur um verðbólgu á föstudaginn næstkomandi. Greiningardeildir bankanna gera ráð fyrir því að verðbólga muni halda áfram að aukast hér innanlands fram á haustið en muni gefa eftir í lok þessa árs og byrjun þess næsta.

Í samanburði við ríki heimsins kemur í ljós að verðbólga á Íslandi er nær því sem tíðkast í Mið-Austurlöndum. Af stærri ríkjum heimsins býr Rússland einungis við viðlíka verðbólgutölur og Ísland um þessar mundir.

-bþa






Fleiri fréttir

Sjá meira


×