Wade skoraði 41 stig í fjórða sigri Miami í röð 9. desember 2008 09:26 Dwyane Wade treður með tilþrifum yfir Emeka Okafor hjá Charlotte NordicPhotos/GettyImages
Fjórir leikir fóru fram í NBA deildakeppninni í körfubolta í nótt. Miami vann sinn fjórða leik í röð þegar það skellti Charlotte á heimavelli 100-96. Dwyane Wade skoraði 41 stig og hirti 8 fráköst fyrir Miami í leiknum, en Jason Richardson skoraði 26 fyrir Charlotte. Þetta var fjórði sigur Miami í röð og hefur liðið nú unnið 12 leiki en tapað 9 og Wade var þarna að skora yfir 40 stig í þriðja skipti í vetur. Hann átti líka tilþrif leiksins þegar hann tróð með tilþrifum yfir Emeka Okafor hjá Charlotte eins og sjá má á myndinni í fréttinni. Golden State stöðvaði níu leikja taphrinu sína með 112-102 sigri á arfaslöku liði Oklahoma 112-102 á útivelli. Andris Biedrins skoraði 17 stig og hirti 21 frákast fyrir Golden State sem var án tveggja fastamanna í leiknum. Kevin Durant var frábær í liði Oklahoma með 41 stig, en það dugði skammt eins og svo oft áður í vetur. Liðið hefur unnið 2 leiki en tapað 20. Memphis lagði Houston 109-97 á heimavelli þar sem Houston lék m.a. án Tracy McGrady og Ron Artest sem eru meiddir. Luis Scola 16 stig (15 frák) og Rafer Alston skoruðu 16 stig hvor fyrir Houston en Rudy Gay skoraði 20 stig af bekknum hjá Memphis sem vann aðeins sjötta sigur sinn í vetur. Loks vann Orlando sigur á LA Clippers á útivelli 95-88 þar sem Dwight Howard var með tröllatvennu hjá Orlando - 23 stig og 23 fráköst. Baron Davis skoraði 27 stig fyrir Clippers sem hefur unnið 4 leiki og tapað 17.
NBA Mest lesið Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Elísa meðal tíu efstu á EM í utanvegahlaupum Sport Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Enski boltinn Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Enski boltinn Byrjaði mótið með enga styrktaraðila og áhyggjur af hótelkostnaði Sport Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Körfubolti Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Enski boltinn Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Fótbolti Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira