Aftur lá Boston fyrir Washington 15. janúar 2008 09:22 Boston liðið virðist vera að hiksta um þessar mundir NordicPhotos/GettyImages
Boston tapaði í nótt öðrum leik sínum í röð í NBA deildinni þegar liðið lá óvænt á heimavelli gegn Washington 88-83 . Þetta var í annað sinn á þremur dögum sem Boston tapar fyrir Washington. Caron Butler skoraði 21 stig fyrir Washington og Antawn Jamison skoraði 20 stig og hirti 10 fráköst. Kevin Garnett var stigahæstur hjá Boston með 23 stig og 9 fráköst og Paul Pierce skoraði 18 stig. Caron Butler skoraði 9 stig þegar Washington tók 25-6 rispu á síðustu sex og hálfri mínútunni í fjórða leikhlutanum og tryggði það sigurinn. Washington hefur unnið fimm af síðustu sex leikjum sínum gegn Boston. Charlotte skellti Denver 119-116 á heimsvelli. Gerald Wallace skoraði 40 stig fyrir Charlotte en Carmelo Anthony skoraði 35 fyrir Denver og Marcus Camby var með 20 stig og 23 fráköst. Portland vann sannfærandi útisigur á New Jersey 99-73 þar sem LaMarcus Aldridge skoraði 20 stig í jöfnu liði Portland en Malik Allen skoraði 17 stig af bekknum hjá New Jersey. San Antonio færði Philadelphia sjöunda tapið í röð með 89-82 sigri á heimavelli sínum. Manu Ginobili skoraði 20 stig fyrir San Antonio og Tim Duncan skoraði 18 stig og hirti 16 fráköst. Willie Green skoraði 21 stig fyrir Philadelphia og Samuel Dalembert skoraði 12 stig og hirti 20 fráköst. Utah lagði Milwaukee á heimavelli 98-87 og knúði fram sigurinn með því að vinna fjórða leikhlutann 27-15. Deron Williams skoraði 33 stig og gaf 10 stoðsendingar hjá Utah en Andrew Bogut var með 23 stig og 10 fráköst hjá gestunum. Sacramento vann frækinn sigur á Dallas á heimavelli 122-120. Kevin Martin er strax farinn að láta til sín taka hjá Sacramento eftir að hafa snúið til baka úr meiðslum og skoraði 39 stig í leiknum og hitti úr 14 af 16 skotum sínum. John Salmons og Francisco Garcia voru með 22 stig hvor. Jason Terry og Davin Harris skoruðu 25 stig hvor fyrir Dallas og Dirk Nowitzki var með 21 stig. Loks vann LA Lakers nauman sigur á slöku liði Seattle á útivelli 123-121 þar sem Kobe Bryant skoraði 48 stig fyrir Lakers en Nick Collison var með 24 stig og 18 fráköst hjá Seattle. Þetta var sjöundi sigurleikur Lakers liðsins í röð - besta rispa síðan árið 2004. Þetta var jafnframt sjöundi tapleikur Seattle í röð og hefur liðið ekki unnið leik á árinu.
NBA Mest lesið Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Elísa meðal tíu efstu á EM í utanvegahlaupum Sport Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan Fótbolti Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Enski boltinn Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada Fótbolti Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Fótbolti Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Fótbolti Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Fótbolti Byrjaði mótið með enga styrktaraðila og áhyggjur af hótelkostnaði Sport Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira