Fjórtándu umferðinni í Iceland Express deild karla í körfubolta lauk í kvöld með leik Grindavíkur og Stjörnunnar í Grindavík. Heimamenn höfðu sigur 103-91.
Páll Axel Vilbergsson skoraði 24 stig fyrir Grindavík, Jonathan Griffin skoraði 19 stig og hirti 8 fráköst, Páll Kristinsson skoraði 18 stig og Adam Darboe skoraði 17 stig, gaf 7 stoðsendingar og hirti 7 fráköst.
Jovan Zdravevski skoraði 22 stig og hirti 7 fráköst fyrir Stjörnuna, Dimitar Karadzovski skoraði 22 stig, gaf 10 stoðsendingar og hirti 6 fráköst og Fannar Helgason skoraði 16 stig.
Grindvíkingar eru í þriðja sæti deildarinnar með 20 stig, sex á eftir toppliði Keflavíkur, en Stjarnan er í 9. sætinu með 10 stig líkt og Tindastóll og Þór Akureyri.