KR með öruggan sigur á Keflavík Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 15. febrúar 2008 19:55 JJ Sola skoraði fjórtán stig fyrir KR. Mynd/Daníel
KR vann dýrmætan sigur á toppliði Keflavíkur í Iceland Express-deildar karla í körfubolta í kvöld, 80-69. Einn annar leikur fór fram í deildinni í kvöld en í honum unnu ÍR-ingar stórsigur á Fjölni í Grafarvorginum, 112-67. KR var með yfirhöndina allan leikinn en staðan í hálfleik var 37-29. KR-ingar náðu svo að auka muninn í fimmtán stig í þriðja leikhluta en munurinn var ellefu stig þegar fjórði leikhluti hófst, 60-49. KR-ingar héldu svo fengnum hlut í lokaleikhlutanum og innbyrtu að lokum öruggan sigur. Það munaði miklu fyrir Keflavík að Bandaríkjamennirnir BA Walker og Tommy Johnson náðu sér ekki á strik en hvorugur komst á blað í fyrri hálfleik. Johnson skoraði fimmtán stig í leiknum og Walker tólf. Joshua Helm var stigahæstur hjá KR með átján stig en hann tók þar að auki fimmtán fráköst. JJ Sola skoraði fjórtán stig. Keflavík og KR eru nú jöfn að stigum á toppi deildarinnar með 28 stig en Keflvíkingar halda toppsætinu þar sem þeir eru með betri árangur í innbyrðis viðureignum liðanna. Grindavík er í þriðja sæti með 26 stig og Skallagrímur í því fjórða með 20 stig. ÍR-ingar komu sér upp í fjórtán stig með sigrinum í kvöld og deila 7.-8. sætinu með Þórsurum.
Dominos-deild karla Mest lesið Salah skráði sig á spjöld sögunnar í endurkomunni í dag Enski boltinn „Ég bið Lionel Messi innilega afsökunar“ Fótbolti Lunga NFL-stjörnu féll saman eftir nálastungumeðferð Sport Tvö sjálfsmörk færðu Arsenal fimm stiga forkost á toppnum Enski boltinn „Verstu 48 klukkustundirnar“ síðan að hann kom til Chelsea Enski boltinn Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti David Silva: Ég var sá fyrsti sem Beckham vildi fá til Inter Miami Fótbolti Völsungar ráða ævintýramann sem þjálfara Sport „Stundum þarf maður heppni“ Enski boltinn Elsti maðurinn til að vinna leik á HM í pílu Sport Fleiri fréttir Jónína Þórdís gældi við þrennuna og Ármann fór áfram í bikarnum Sara Rún með sigurkörfuna í ótrúlegri endurkomu Keflavíkur Kjartan Atli lætur af störfum Körfuboltakvöld í áfalli yfir vörn Álftaness: „Bara kjánalegt að horfa á þetta“ Curry sneri aftur með miklum látum Uppgjörið:Njarðvík - Þór Þorlákshöfn 92-93| Stigin til Þorlákshafnar eftir háspennu Álftanes - Tindastóll 78-137 | Metin slegin í stórsigri Stólanna „Get ekki verið fúll út í mína menn“ Fyrsti sigurinn í rúman mánuð: „Sýndum í dag að við erum með gott lið“ Uppgjörið: KR - ÍR 102-96 | Langþráður KR-sigur ÍA - Stjarnan 85-115 | Meistararnir búnir að finna gírinn Uppgjörið: Valur - Keflavík 111-91 | Valur þurfti ekki að hafa mikið fyrir fimmta sigrinum í röð Uppgjörið: Grindavík - Ármann 105-85| Nýliðarnir létu toppliðið vinna fyrir kaupinu sínu Hafa jafnað við metlið Golden State Warriors Uppgjörið: Njarðvík-Valur 94-90| Frábær endurkomu sigur skilar Njarðvík toppsætinu Stjarnan steig á bensíngjöfina og kláraði Tindastól að lokum Tryggvi hafði hægt um sig í sigri „Ég er yfirleitt ekki með neinn kjaft“ Leik lokið: Ármann 70 - 106 Grindavík | Stórsigur Grindavíkur á lánlausum nýliðum Leik Lokið: Haukar 86 - 92 KR | Nýliðarnir höfðu betur gegn meisturunum Fyrsti sigur Hamars/Þórs kom gegn Keflavík Tindastóll með fellu gegn Keilu í Eistlandi Söguleg frammistaða á Extra-leikunum: „Ég get ekki svekkt mig á þessu“ „Hann er ekkert eðlilega mikilvægur “ Rekinn út úr húsi vegna viðbragða þegar mótherji ætlaði að hlera leikhléið „Hortugasta klapp sem ég hef séð“ „Ég myndi bróka hann inn í klefa“ Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík 118-67 | Toppliðið tekið til slátrunar Tryggvi reif til sín flest fráköst Ármann - Þór Þ. 110-85 | Ármenningar komnir á blað Sjá meira