Kobe Bryant: Ég vildi aldrei fara 26. febrúar 2008 10:15 Betri tíð - Kobe Bryant hefur tekið gleði sína á ný Nordic Photos / Getty Images
Kobe Bryant hefur lýst því yfir að hann sé feginn að aldrei varð neitt úr því að hann færi frá LA Lakers eins og hann hótaði í sumar. Eftir að hafa verið miðlungslið undanfarin ár er Lakers-liðið nú orðið eitt það besta í NBA deildinni. Lakers hefur verið á mikilli sigurgöngu undanfarið og það er ekki síst fyrir tilkomu Spánverjans Pau Gasol sem hefur styrkt liðið gríðarlega síðan hann kom til liðsins frá Memphis. Þá á Lakers liðið inni miðherjann Andrew Bynum sem hefur verið frá keppni síðustu vikur og ljóst er að ekkert lið vill mæta þeim gulu í úrslitakeppninni í vor. Kobe Bryant fór fram á að verða skipt frá Lakers í sumar þegar honum þótti sýnt að Lakers-liðið yrði ekki meira en byssufóður fyrir bestu liðin í Vesturdeildinni. "Ég var víst búinn að kaupa húsið hans Michael Jordan í Chicago og ég veit ekki hvað og hvað," sagði Bryant hlæjandi þegar hann var spurðu út í það hvort hann hefði í raun og veru viljað fara frá Lakers. "Þetta fór allt vel. Ég vildi aldrei fara en á þeim tíma var erfitt að sjá fyrir sér bjarta framtíð. Ég er mjög feginn að ég fór ekki og þetta fór allt vel. Allir hlutir hafa sinn tilgang," sagði Bryant.
NBA Mest lesið Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Enski boltinn Elísa meðal tíu efstu á EM í utanvegahlaupum Sport Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Körfubolti Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Enski boltinn Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Enski boltinn Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Fótbolti Byrjaði mótið með enga styrktaraðila og áhyggjur af hótelkostnaði Sport Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira