Óvænt tap Skallagríms á heimavelli Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 28. febrúar 2008 21:44 Ken Webb, þjálfari Skallagríms. Mynd/E. Stefán
Skallagrímur féll í sjötta sæti Iceland Express deildar karla í kvöld er liðið tapaði mjög óvænt fyrir Þór frá Akureyri á heimavelli. Þór vann leikinn með fimm stiga mun, 88-83. Skallagrímur er því enn með 20 stig í deildinni en hefur nú misst bæði Snæfell og Njarðvík upp fyrir sig í töflunni. Þau voru bæði með 20 stig fyrir leiki kvöldsins en unnu sína leiki. Snæfell vann öruggan sigur á Fjölni í Grafarvoginum, 114-61, og Njarðvík vann Tindastól á Sauðárkróki, 96-87. Þá urðu einnig óvænt úrslit í leik Grindavíkur og ÍR en framlengja þurfti þann leik. Að lokum vann ÍR leikinn með tveggja stiga mun, 107-105. Grindavík heldur þó öðru sætinu í deildinni um stundarsakir en KR getur annað kvöld komist upp í annað sætið með sigri á Stjörnunni á útivelli. Keflavík á einnig leik á morgun, gegn Hamri, en liðið situr á toppi deildarinnar með 30 stig. Grindavík og KR koma næst með 28 stig. Njarðvík og Snæfell eru með 22 stig sem fyrr segir og Skallagrímur með 20 stig. ÍR er nú með átján stig eftir sigurinn á Grindvíkingum og á góðri leið m eð að tryggja sig inn í úrslitakeppnina. Þór, Tindastóll og Stjarnan berjast um áttunda sætið deildinni en þar stendur Þór best að vígi eftir úrslit kvöldsins. Þór er með sextán stig, Tindastóll fjórtán og Stjarnan tólf en á leik til góða. Stigahæstir í leikjum kvöldins: Fjölnir - Snæfell 61-114 Anthony Derjaj 13 (Fjölnir), Justin Shouse 24 (Snæfell). Tindastóll - Njarðvík 87-96 Philip Perre 25 (Tindastóll), Damon Bailey 28 (Njarðvík) Grindavík - ÍR Páll Axel Vilbergsson 39 (Grindavík), Nate Brown 31 (Þór)
Dominos-deild karla Mest lesið Heimir og Lagerbäck sameinaðir á ný Fótbolti Vilja allar það sem Sveindís hefur: „Margt sem ég myndi vilja taka frá þeim“ Fótbolti Oasis tileinkaði Diogo Jota lag á fyrstu tónleikunum í sextán ár Enski boltinn Þrennubikar Man. United geymdur á Anfield Enski boltinn Óvissan tekur við hjá Hákoni Enski boltinn Tryggði sig inn á Opna breska risamótið með mögnuðum erni Golf Umboðsmaður með Íslandstengingu sakaður um að nauðga konu í sex ár Enski boltinn Glódís með á æfingu Sport Brutu hefð á Wimbledon mótinu vegna Diogo Jota Sport Taka tíuna af Rashford og segja honum að vera lengur í sumarfríi Enski boltinn Fleiri fréttir Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn James tekur einn dans enn í það minnsta Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ „Búið að vera ómannlegt álag á þeim síðustu tíu mánuðina“ Drakk áfengi í fyrsta sinn eftir hann varð NBA meistari Sjáðu þegar Tyrese Haliburton virðist slíta hásin í oddaleiknum OKC byrjað að undirbúa sigurhátíð sína fyrir leikinn Tom Brady setur LeBron James fyrir ofan Jordan Bara fjögur útilið hafa unnið oddaleik um NBA titilinn Durant var uppi á sviði þegar hann frétti af skiptunum Sjá meira