Paul og West með stórleik í sigri New Orleans 26. mars 2008 10:56 New Orleans situr óvænt í efsta sæti í ógnarsterkri Vesturdeildinni NordcPhotos/GettyImages
Sex leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt. Stjörnuleikmennirnir David West og Chris Paul fóru mikinn í sigri New Orleans á Indiana, en New Orleans er í efsta sæti Vesturdeildarinnar. New Orleans vann 114-106 sigur í Indiana þar sem David West skoraði 35 stig og hirti 16 fráköst og Chris Paul var með 31 stig og 14 stoðsendingar. Danny Granger skoraði 26 stig fyrir Indiana. San Antonio vann fjórða leikinn í röð þegar það skellti Orlando úti 107-97. Manu Ginobili skoraði 28 stig fyrir meistarana, Michael Finley 24 og Tim Duncan var með 19 stig og 15 fráköst. Dwight Howard skoraði 24 stig og hirti 21 frákast fyrir Orlando og var þetta í 8. sinn í vetur sem hann nær tvennu með 20+ stigum og 20+ fráköstum. Chicago lagði Atlanta á heimavelli sínum 103-94. Drew Gooden skoraði 31 stig og hirti 16 fráköst fyrir Chicago en Josh Childress skoraði 22 fyrir Atlanta. Dallas lagði LA Clippers 103-90. Josh Howard skoraði 32 stig fyrir Dallas en Corey Maggette skoraði 21 fyrir Clippers. Utah lagði Charlotte 128-106 á heimavelli. Carlos Boozer skoraði 28 stig og hirti 13 fráköst fyrir Utah, Mehmet Okur skoraði 20 stig og hirti 10 fráköst og Deron Williams skoraði 14 stig og gaf 15 stoðsendingar. Jason Richardson skoraði 26 stig fyrir Charlotte og Gerandl Wallace 21 stig. Loks vann Portland auðveldan sigur á Washington 102-82 þar sem Martell Webster var stigahæstur heimamanna með 23 stig en Caron Butler skoraði 19 stig fyrir Washington. Brandon Roy þurfti að fara af velli hjá Portland meiddur á nára og óvíst er hve lengi hann verður frá keppni. Staðan í Austur- og Vesturdeild
NBA Mest lesið Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Enski boltinn Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Fótbolti Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Enski boltinn Littler tapaði óvænt á heimsmeistaramóti unglinga Sport Vill sjá breytingar svo það komi ekki annað klúður Formúla 1 Mun Conte taka við Manchester United? Sport Selfoss missir mikið efni Íslenski boltinn Ronaldo snúinn aftur til félagsliðsins Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Hroturnar heyrðust í beinni útsendingu Sport Fleiri fréttir Hefur sitt 40. tímabil: „Eins og að bera saman epli og appelsínur“ „Við þurfum að gera margt betur“ Grindavík - KR 79-106 | Yfirburðir bikarmeistaranna Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Sjá meira