Menning

Listahátíð hefst í næstu viku

Hljómsveitin Amiina verður kemur fram á hátíðinni
Hljómsveitin Amiina verður kemur fram á hátíðinni

Þann 15. maí hefst þriggja vikna dagskrá Listahátíðar í Reykjavík með fjölbreyttum tónlistar- og sviðlistaviðburðum og miklum fjölda myndlistarsýninga. Viðburðirnir eiga sér stað í sýningarsölum, listasöfnum, galleríum og á götum úti og teygja einnig anga sína út á land.

Í ár verður aðaláhersla hátíðarinnar á myndlist, en það var fyrst gert árið 2005 og þótti takast mjög vel. Myndlistin er enn umfangsmeiri í ár og nú eru íslenskir sýningarstjórar í aðalhlutverki. Hátt í 200 íslenskir og erlendir myndlistarmenn taka þátt í yfir 20 sýningum en stærsta verkefnið, Tilraunamaraþon í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi er jafnframt umfangsmesta myndlistarverkefni sem hér hefur farið fram.

Dagskrá hátíðarinnar í ár prýðir fjöldi annarra listamanna sem allir skara fram úr hver í sinni grein, jafnt hér heima sem erlendis. Miðar á þá viðburði eru seldir á vef listahátíðar, www.artfest.is. Meðal tónlistarviðburða á Listahátíð má nefna tónleika stórmeistara djassins, hins nífalda grammyverðlaunahafa Wayne Shorter og einsöngstónleika hinnar glæsilegu bandarísku söngdívu Denyce Graves sem báðir verða í Háskólabíói og stórtónleika með Amiinu, Kippa og vinum í Undralandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.