KR í undanúrslitin eftir sigur á Blikum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 17. mars 2009 19:04 Jakob Sigurðarson skoraði 20 stig fyrir KR í kvöld. Mynd/Vilhelm
KR tryggði sér í kvöld sæti í undanúrslitum úrslitakeppni Iceland Express deild karla eftir sigur á Breiðabliki á útivelli í kvöld, 75-102. Blikar mættu grimmir til leiks og voru með átta stiga forystu eftir fyrsta leikhluta. En þeir skoruðu ekki nema þrjú stig í öðrum leikhluta á meðan að KR-ingar komu sér í örugga forystu sem þeir létu aldrei af hendi. Leiknum var lýst beint á Vísi og má lesa lýsinguna hér fyrir neðan. Leik lokið: Breiðablik - KR 75-102 Það er óhætt að segja að Blikar hafi fallið úr leik með sæmd eftir hetjulega baráttu í upphafi leiks. En þegar að KR komst almennilega í gang var aldrei spurning hvoru megin sigurinn myndi lenda. KR-ingar keyrðu þetta af krafti fram á lokasekúndu leiksins og sigurinn því eins stór og raun bar vitni. Nemanja Sovic fór mikinn í liði Breiðabliks og skoraði 34 stig og tók tólf fráköst. Emil Jóhannsson kom næstur með ellefu stig og Rúnar Ingi Erlingsson skoraði tíu. Hjá KR var Jakob Sigurðarson stigahæstur með 20 stig. Fannar Ólafsson skoraði fjórtán og Jón Arnór Stefánsson þrettán. 36. mínúta: Breiðablik - KR 67-89 Það vantar ekkert upp á baráttuna hjá Blikum en KR-vélin mallar áfram og sér til þess að forskot liðsins verði aldrei í hættu.3. leikhluta lokið: Breiðablik - KR 56-74 KR-ingar hafa örugga forystu fyrir síðasta leikhlutann. Þeir hafa slakað á þeirri miklu pressuvörn sem KR hefur beitt lengst af en Blikar eru þó hvergi nærri því að ógna öruggri forystu gestanna.26. mínúta: Breiðablik - KR 44-65 Blikar hafa nú byrjað að skora á nýjan leik eftir að hafa skorað sjö stig á um þrettán mínútna leikkafla. KR-ingar gefa þó ekkert eftir.22. mínúta: Breiðablik - KR 35-57 KR-ingar halda uppteknum hætti í upphafi síðari hálfleiks og virðast fá færi ætla að gefa á sér.Hálfleikur: Breiðablik - KR 35-53 Afar erfiður leikhluti hjá Blikum. Liðið skoraði aðeins fimm stig gegn 31 frá KR. KR-ingar settu þó aðeins niður einn þrist í hálfleiknum en hann kom á lokamínútunni en hann setti Skarphéðinn Ingason niður. KR-ingar eru einfaldlega að spila glimrandi sóknarleik og Blikum tókst að sama skapi engin svör að finna við pressuvörn gestanna. Nemanja Sovic hefur skorað sextán stig fyrir Breiðablik og þeir Emil Jóhannsson og Rúnar Ingi Erlingsson sex hvor. Hjá KR eru Helgi Már Magnússon og Fannar Ólafsson stigahæstir með tíu stig hvor. Jón Arnór Stefánsson er með átta stig.16. mínúta: Breiðablik - KR 33-42 Blikum gengur illa með pressuvörn KR-inga og það liðu tæpar sex mínútur af öðrum leikhluta áður en fyrstu stigin utan af velli komu hjá Blikum. Staðan 20-3 fyrir KR í öðrum leikhluta.14. mínúta: Breiðablik - KR 31-34 KR-ingar ná yfirhöndinni í leiknum en Blikar skora sitt fyrsta stig eftir rúmar þrjár mínútur í öðrum leikhluta. Blikar taka leikhlé en KR er með 12-1 forystu í leikhlutanum.13. mínúta: Breiðablik - KR 30-28 Blikar byrja illa í öðrum leikhluta. Hafa ekki enn náð að skora og meira að segja misnotað tvö vítaköst. KR-ingar þó enn að gera mistök í sínum sóknarleik, þrátt fyrir allt.1. leikhluta lokið: Breiðablik - KR 30-22 Ótrúlegar fréttir héðan úr Smáranum. Blikar með átta stiga forystu og kláruðu leikhlutann á 7-2 spretti. Þar af var Emil Jóhannsson með fimm stig, meðal annars einn þrist. Sóknarleikur KR hefur batnað með tilkomu Jóns Arnórs en þeir þurfa að endurskoða varnarleikinn.8. mínúta: Breiðablik - KR 21-16 Jón Arnór kominn inn og byrjar á no-look sendingu á Jason Dourisseau sem minnkar muninn í fimm stig. Blikar neyðast til að taka erfið skot og þristarnir eru ekki að detta eins og í upphafi leiksins.7. mínúta: Breiðablik - KR 19-12 Þetta er afar hraður leikur. KR-ingar verjast afar framarlega og Blikum gengur misvel að spila sig í gegnum það. Skotin eru að detta illa hjá KR-ingum. Fannar Ólafsson kemur inn í fyrsta sinn í leiknum en Jón Arnór Stefánsson er enn á bekknum. 4. mínúta: Breiðablik - KR 15-6 KR klórar í bakkann en Blikar gera sér lítið fyrir og koma með tvo þrista til viðbótar! Fyrst Rúnar Ingi Erlingsson og svo Sovic aftur. Fimm þristar á fyrstu fjórum mínútunum hjá Blikum og KR-ingar taka leikhlé.3. mínúta: Breiðablik - KR 9-4 KR kemst í 4-0 en Blikar svara með þremur þristum í röð. Fyrst Kristján Sigurðsson, svo Nemanja Sovic og Hjalti Vilhjálmsson. Áhorfendur taka gríðarlega vel við sér og heimamenn eru vel studdir í Smáranum. 1. mínúta: Breiðablik - KR 0-2 Leikurinn er hafinn hér í Smáranum og vinna KR-ingar uppkastið. Baldur Ólafsson fær tvö skotfæri en nýtir hvorugt. Hinum megin klikkar Nemanja Sovic í fyrstu sókn Blika en Darri Hilmarsson setur niður fyrstu körfu leiksins. 19.07 - Velkomin til leiks Vísir heilsar hér úr Smáranum þar sem leikur Breiðabliks og KR fer senn að hefjast. Deildarmeistarar KR geta með sigri í kvöld tryggt sér sæti í undanúrslitum úrslitakeppninnar en liðið vann stórsigur á Blikum í fyrsta leik liðanna, 123-75. Svo virðist sem að Jón Arnór Stefánsson verði með KR-ingum í kvöld en hann var ekki með í fyrsta leiknum eftir að hann meiddist á æfingu. Ellert Arnarson dettur úr hópnum.
Dominos-deild karla Mest lesið Meiddur Ramsey stýrir Cardiff út tímabilið Enski boltinn Guardiola segir Meistaradeildarsæti vera nóg Enski boltinn Bestu Mörkin: „Kannski ekki fallegasta markið“ Íslenski boltinn Hamar í góðum málum og Breiðablik jafnaði metin Körfubolti „Flæðið í sóknarleiknum var frábært“ Körfubolti Kunnu ekki reglurnar og komust að því í beinni útsendingu Fótbolti „Út með ruslið og inn með íþróttaandann“ Sport Uppgjörið: Haukar - Valur 101-66 | Haukar völtuðu yfir Val í fyrstu rimmunni Körfubolti „Fráköstin hjá okkur voru hræðileg“ Körfubolti „Við Em erum miklu stærri en þær allar“ Körfubolti Fleiri fréttir Hamar í góðum málum og Breiðablik jafnaði metin „Flæðið í sóknarleiknum var frábært“ Uppgjörið: Haukar - Valur 101-66 | Haukar völtuðu yfir Val í fyrstu rimmunni „Fráköstin hjá okkur voru hræðileg“ Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 95-80 | Yfirburðir í fráköstum og Njarðvíkingar leiða „Við Em erum miklu stærri en þær allar“ Martröðin fullkomnuð fyrir Mavericks Veðbankar vestanhafs halda með mótherjum Lakers KR einum sigri frá því að komast upp í Bónus-deildina Brynjar Karl tekur slaginn og segist ætla að bjóða sig fram sem forseta ÍSÍ Haiden Palmer kemur aftur til Íslands en nú sem þjálfari Garðabæjargrýla Grindvíkinga hefur stækkað og stækkað í 86 mánuði Lagði egóið til hliðar fyrir liðið „Ég er alltaf stressuð“ Dallas og Miami enn á lífi í umspili NBA „Skitum á okkur í þriðja leikhluta“ „Fáránlega erfið sería“ Háspenna í umspili um sæti í Bónus deildinni Uppgjörið: Haukar - Grindavík 79-64 | Haukar númeri of stórar Svona eru undanúrslitin: Ballið hefst á tvíhöfða annan í páskum Versta úrslitakeppnin í sögu Reykjanesbæjarliðanna Butler og Curry í stuði þegar Golden State komst í úrslitakeppnina Luka fyrstur til að skáka Steph og LeBron í meira en áratug „Holan var of djúp“ „Vissum alveg að við værum í góðum málum“ „Við erum að byggja upp ákveðinn kúltúr“ Uppgjörið: Álftanes - Njarðvík 104-89 | Álftnesingar í undanúrslit í fyrsta sinn Uppgjörið: ÍR - Stjarnan 74-80 | Garðbæingar í undanúrslit Hafa rekið þrjá þjálfara síðan Durant kom til Phoenix Suns „Vorum að veita fría sálfræðihjálp fyrir heilt samfélag“ Sjá meira