Körfubolti

Flautuþristar og frá­bær tilþrif: „Hún er eins og jarð­ýta“

Sindri Sverrisson skrifar
Flautuþristar eru alltaf fallegir og tveir slíkir voru í tilþrifum 3. umferðar.
Flautuþristar eru alltaf fallegir og tveir slíkir voru í tilþrifum 3. umferðar. Samsett/Sýn Sport Ísland

Frábærir flautuþristar, varin skot og hraðar hreyfingar sem gætu hreinlega valdið meiðslum mótherjanna voru á meðal þess sem sjá mátti í tilþrifum 3. umferðar Bónus-deildar kvenna í körfubolta.

Tilþrifin voru sýnd í Körfuboltakvöldi kvenna á Sýn Sport Ísland í gærkvöld eftir að þriðju umferðinni lauk með sigri Vals á Ármanni.

„Hún er eins og jarðýta. Það er ekki hægt að stoppa þetta,“ sagði Ólöf Helga Pálsdóttir um KR-inginn Rebekku Rut Steingrímsdóttur sem átti ekki bara ein heldur tvenn af tíu bestu tilþrifunum í umferðinni, þó að KR hafi orðið að sætta sig við 115-97 tap gegn Njarðvík.

Öll tilþrifin má sjá í spilaranum hér að neðan.

Klippa: Körfuboltakvöld kvenna - Tilþrif 3. umferðar



Fleiri fréttir

Sjá meira


×