Valdaskiptin staðfest Páll Baldvin Baldvinsson skrifar 17. mars 2009 00:01 Kenning Svans Kristjánssonar, prófessors í stjórnmálafræði, um búsáhaldabyltinguna er athyglisverð. Hann hefur lýst því að mótmælendur á Austurvelli hafi knúið fram valdaskipti á Íslandi og kosningar fram undan séu í raun bara viðurkenning á gerðum hlut: „skríllinn" eins og sumir talsmenn í Sjálfstæðisflokknum kölluðu mótmælendur, hafi náð fram í friðsamlegum mótmælum eftirtöldum stefnumiðum: ríkisstjórn fór frá, Alþingi var rofið, skipt um stjórn í Seðlabanka og Fjármálaeftirliti - og nú sé að rætast fimmta krafan um stjórnlagaþing. Svanur líkir mótmælendum á Austurvelli við frelsishreyfingar Austur-Evrópu - Sjálfstæðis-flokkurinn er þá hinn stjarfi ríkisflokkur, „kommúnískur" hagsmunagæsluflokkur með uppbelgda falska stefnu í bland við þjóðernisrembu - svokallaða „sjálfstæðisstefnuna" sem þeir tala svo oft fjálglega um eins og þar fari viðurkennd evrópsk kenning í stjórnmálum. Svanur gengur lengra og fullyrðir að Hörður Torfason hafi fest nafn sitt í bækur sögunnar fyrir lýðræðisbaráttu sína. Hinn horski vestfirski fyrrum sjálfstæðismaður og prófessor hvetur flokkinn nú til djarfhuga ákvarðana og skorar á hann að gera Ragnheiði Elínu að formanni og þannig að leiða fram vilja grasrótarinnar sem vill sjá alvarlega stefnubreytingu flokksins. Þar skýtur hann langt frá markinu og er tekinn að ímynda sér kraftaverk hjá gamla íhaldinu sem víst mun kjósa Bjarna Benediktsson sem formann af eftirsjá og hreinni íhaldssemi - eins og hinn snari Garðbæingur eigi eitthvað sameiginlegt með nafna sínum annað en upphafsstafi og nafn. Enda er oft betra að skoða Flokkinn sem sekt eða trúarklíku en sem póli-tíska hreyfingu. Massinn sem keyrði fram öll stefnumið sín á nokkrum dögum er undarlega þegjandalegur þessi dægrin, þótt stöðugt fjölgi atvinnulausum þá mættu þeir ekki í þúsundum á Austurvöll á laugardag. Þar hljómaði Pink Floyd - Bleik froða - yfir grasinu: We dont need no education. Þarf sárari reynslu en atvinnumissi til að fólk mæti á strætin og mótmæli friðsamlega? Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Páll Baldvin Baldvinsson Mest lesið Hugsanlega löglegt, en siðlaust og grimmt — af hundsráni í GOGG Kristinn Ka. Nína Sigríðarson Skoðun Þjóðkirkjan engu svarar – hylur sig í fræðilegri þoku Hilmar Kristinsson Skoðun Lýðræði eða hópeinelti? Margrét Pétursdóttir,Þórarinn Haraldsson,Þórdís Guðjónsdóttir,Sigurveig Benediktsdóttir Skoðun Öryggisgæslu í Mjódd, núna, takk fyrir! Helgi Áss Grétarsson Skoðun Saman getum við komið í veg fyrir slag Alma D. Möller Skoðun Ríkisstjórnin ræðst gegn launafólki og atvinnulausum Finnbjörn A. Hermannson Skoðun Svar til stjórnunarlegs ábyrgðarmanns frá Keflavík Soffía Sigurðardóttir Skoðun Einkavæðing orkunnar, skattasniðganga og lífeyrissjóðir Ögmundur Jónasson Skoðun Er þetta virkilega svarið frá Þjóðkirkjunni? – þegar barn þarf að flýja úr helgidóm Hilmar Kristinsson Skoðun Fátæk börn á Íslandi Kolbrún Baldursdóttir Skoðun
Hugsanlega löglegt, en siðlaust og grimmt — af hundsráni í GOGG Kristinn Ka. Nína Sigríðarson Skoðun
Lýðræði eða hópeinelti? Margrét Pétursdóttir,Þórarinn Haraldsson,Þórdís Guðjónsdóttir,Sigurveig Benediktsdóttir Skoðun
Er þetta virkilega svarið frá Þjóðkirkjunni? – þegar barn þarf að flýja úr helgidóm Hilmar Kristinsson Skoðun
Hugsanlega löglegt, en siðlaust og grimmt — af hundsráni í GOGG Kristinn Ka. Nína Sigríðarson Skoðun
Lýðræði eða hópeinelti? Margrét Pétursdóttir,Þórarinn Haraldsson,Þórdís Guðjónsdóttir,Sigurveig Benediktsdóttir Skoðun
Er þetta virkilega svarið frá Þjóðkirkjunni? – þegar barn þarf að flýja úr helgidóm Hilmar Kristinsson Skoðun