Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar 23. október 2026 12:01 Það er kostulegt að lesa nýlegan dóm Hæstaréttar í máli gegn fasteignafélaginu Heimum. Falleinkunn er rétta lýsingin á hrópandi dæmi um vanrækslu sem á ekki að þekkjast hjá félagi sem er metið á 63 milljarða króna á hlutabréfamarkaði. Málið á rætur sínar að rekja til stórbruna atvinnuhúsnæðis að Miðhrauni 4 í Garðabæ árið 2018. Þessi bruni fór vart framhjá nokkrum manni, svartur reykjarmökkurinn sást alls staðar að af höfuðborgarsvæðinu. Eigendur hússins voru tveir, Heimar með 75% og hinn með 25%. Húsið var ónýtt eftir brunann og þurfti að byggja það upp á nýtt. Í dómi Hæstaréttar kemur fram að frá því að endurbygging hússins hófst hefur verið ágreiningur milli Heima og hins eiganda hússins um framkvæmdir, ábyrgð og skiptingu kostnaðar. Þótti eiganda minnihlutans samráðsleysi og yfirgangur Heima ganga úr hófi fram. Niðurstaða Hæstaréttar í þeim deilum vekur þó ekki endilega mesta athygli heldur sú staðreynd að þetta risastóra fasteignafélag sýndi yfirgang af verstu gerð og furðulegt virðingarleysi fyrir landslögum sem leiddi til þess að það tapaði málinu. Héldu ekki húsfundi í 5 ár Þar sem eigendur hússins voru tveir þá segir sig sjálft að allar meiriháttar ákvarðanir um framkvæmdir við endurbyggingu hússins átti að ræða á húsfundi. Það kemur fram í dómnum að minnihlutaeigandinn óskaði margsinnis eftir slíkum fundi, en Heimar hunsuðu það og héldu ekki húsfund í 5 ár. Heimar fóru einfaldlega sínu fram við endurbygginguna og kröfðu minnihlutaeigandann síðan um greiðslur sem hann hafði aldrei samþykkt og voru langt umfram eignarhlut hans. Allur þessi kostnaður var dæmdur út af borðinu fyrir Hæstarétti. Hvernig gerist svona lagað? Áleitnar spurningar vakna um innri ferla hjá jafn stóru fyrirtæki og Heimum. Hvernig má það vera að fasteignafélag sem sérhæfir sig í kaupum og rekstri atvinnuhúsnæðis geri sig sekt um það sem með réttu má kalla hroka eða skeytingarleysi? Gera verður mun ríkari kröfur til Heima sem hefur lögmenn á launaskrá um að starfa eftir lögum. Fram hjá því verður þó ekki horft að eftir höfðinu dansa limirnir. Heima-dæmi sem lendir á endanum á almenningi Með þessu sleifarlagi sköpuðu Heimar sér sjálfir umtalsvert fjárhagstjón. Þetta tjón kemur öllum almenningi við, því að lífeyrissjóðir landsins eru meðal stærstu eigenda félagsins. Tap lífeyrissjóða er tap almennings. Ekki bætir úr skák að samkvæmt fréttum fjölmiðla er hundruð milljóna króna skaðabótamál gegn Heimum í gangi vegna tjóns af brunanum mikla fyrir átta árum, tjóns sem rakið er til vanrækslu Heima. Hvers konar subbuskapur hefur verið þarna í gangi? Víti til varnaðar Almenningur og stjórnarmenn í húsfélögum um land allt ættu að líta á þennan dóm sem víti til varnaðar. Hvort sem um ræðir lítið fjölbýli eða stórt atvinnuhúsnæði, þá gilda lög um fjöleignarhús. Húsfundir eru ekki valkvæðir og formkröfur skipta máli. Hirðuleysi Heima er ekki til eftirbreytni. Tryggjum ávallt að allar ákvarðanir séu teknar á löglega boðuðum húsfundum. Annað getur orðið dýrkeypt. Höfundur er viðskiptafræðingur Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Húsnæðismál Mest lesið Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Freyja Þórisdóttir skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Sjá meira
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun