7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir og Álfhildur Leifsdóttir skrifa 23. október 2026 11:31 Það hefur lengi verið kallað eftir því að námsmat í grunnskólum verði skýrara og auðskiljanlegra og er það vel. Margir foreldrar og nemendur hafa saknað gamla talnakerfisins þar sem merking einkunnarinnar var nokkuð augljós: 70% árangur gaf 7, 80% gaf 8 og svo framvegis. En það er ekki það talnakerfi sem nú á að taka upp að fyrirskipan mennta- og barnamálaráðherra.Nemandi sem sýnir 70% þekkingu á námsefninu fær ekki sjálfkrafa einkunnina 7. Í nýja matskvarðanum á talan 7 að merkja að nemandi hafi náð þeirri hæfni sem ætlast er til samkvæmt hæfniviðmiðum aðalnámskrár við lok grunnskóla, þar sem talan ætti að vera 10 samkæmt eldri talnakvarða. Hugmyndafræðin sem bókstafakerfið byggir á stendur þannig að mestu leyti áfram. Bókstöfunum er einungis skipt út fyrir tölustafi í áformum ráðherra um notkun talnakvarða við lok grunnskólagöngu. Vöndum til verka Núgildandi aðalnámskrá byggir í grunninn á námskrá frá 2011 og greinasviðum frá 2013. Hæfniviðmiðin og bókstafakerfið voru þróuð í samhengi við hana og byggja á sömu hugmyndafræði um hæfnimiðað námsmat. Talnakerfið eins og við þekkjum það passar ekki þar inn. Þess vegna endurspeglar talan 7 í nýja talnakerfinu ekki 70% þekkingu heldur allt að 100% þekkingu. Heildarendurskoðun aðalnámsskrár er tímabær, hana þarf að uppfæra í takt við tímann, ákveða hvað á raunverulega að meta við lok grunnskóla og nýta matskvarða sem passar þeim markmiðum. Í nýja matskvarðanum eru tölurnar 8-10 eru aðeins gefnar sé um umfram þekkingu á námsmarkmiðum að ræða eða framúrskarandi hæfni eða eins og ráðuneytið útskýrir: "einkunnir 8 - 10 lýsa stigvaxandi meiri dýpt, öryggi, sjálfstæði og beitingu þeirrar hæfni sem hæfniviðmið flokksins ná yfir." Forsendur þess að meta hæfni sem framúrskarandi, einkunnir 8 - 10, samkvæmt leiðbeiningum MMS er að að nemandi hafi lokið grunnskólanámi í faginu og nær að ljúka framhaldsskólaáföngum fyrir útskrift úr grunnskóla. Hins vegar segir á síðu ráðuneytisins: ‘Að gefnu tilefni er tekið fram að ekki er gerð krafa um að slíkur nemandi þurfi að ljúka framhaldsskólaáfanga.’ Þarna er greinilegt misræmi milli stofnana í þeirri hraðsuðu sem þessi innleiðing er. Breyttar leikreglur í miðjum leik Nemendur sem eru nú í 10. bekk hafa gengið í gegnum grunnskólann í einu námsmatskerfi. Þeir ættu ekki að þurfa að ljúka skólagöngunni sem tilraunahópur fyrir kerfi sem enn er verið að útfæra. Það er verið að breyta leikreglunum hjá þeim á meðan á leiknum stendur. Skynsamlegra væri að gefa sér tíma í heildarendurskoðun og innleiða síðan nýtt námsmat í áföngum, byrja á 4. og 7. bekk og innleiða kvarðann á þremur árum. Þá fengju skólar tíma til að samræma vinnubrögð, kennarar tíma til faglegrar þróunar og nemendur vissu frá upphafi hvaða viðmið gilda um námsmat þeirra. Í umsagnarferli um þessar breytingar bárust yfir 100 umsagnir og voru flestar þeirra gagnrýnar, meðal annars vegna óskýrleika breytinganna og þess hraða sem stefnt er að við innleiðinguna. Á sama tíma stígur ráðherra málaflokksins fram og gefur skýr skilaboð um að breytingarnar verði keyrðar í gegn þrátt fyrir þessa gagnrýni. Þegar svo stór hluti umsagna lýsir áhyggjum af sömu atriðum, ættu viðbrögðin frekar að vera að staldra við, hlusta og vanda betur til verka, en ekki að stíga fastar á bensíngjöfina. Hraði er ekki mælikvarði á umbætur. Ef markmiðið er raunverulega að bæta námsmat í grunnskólum þarf að byrja á réttum enda, fara í heildstæða endurskoðun, fá fagfólkið að borðinu og gefa því tíma til að vinna verkið almennilega. Álfhildur Leifsdóttir er grunnskólakennari.Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir er menntunarfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Álfhildur Leifsdóttir Mest lesið Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Freyja Þórisdóttir skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Sjá meira
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun