Fyrsti sigur Skallagríms Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 8. janúar 2009 21:08 Igor Beljanski leiddi Skallagrím til sigurs í kvöld.
Skallagrímur vann í kvöld sinn fyrsta leik í Iceland Express-deild karla er liðið lagði Breiðablik á heimavelli, 73-58. Alls voru þrír leikir í deildinni í kvöld en Keflavík vann einnig sigur á Þór á Akureyri, 93-76. Þá vann Stjarnan sigur á Grindavík, 90-88. Skallagrímur náði að halda Breiðabliki í aðeins 27 stigum í fyrri hálfleik og hélt uppteknum hætti í þeim síðari er Blikar skoruðu 21 stig. Landon Quick skoraði alls 21 stig fyrir Skallagrím og tók fjórtán fráköst. Igor Beljanski kom næstur með 20 stig og þrettán fráköst. Hjá Breiðabliki var Daníel Guðmundsson stigahæstur með tólf stig. Nemanja Sovic kom næstur með ellefu stig og ellefu fráköst. Hörður Axel Vilhjálmsson skoraði 20 stig fyrir Keflavík fyrir norðan og Sigurður Þorsteinsson fjórtán auk þess sem hann tók ellefu fráköst. Guðmundur Jónsson var stigahæstur Þórsara með fjórtán stig. Keflavík er í þriðja sæti deildarinnar með sextán stig og Breiðablik í því sjöunda með tíu. Þór og Stjarnan eru jöfn með átta stig í 9.-10. sæti. Skallagrímur er enn á botni deildarinnar en nú með tvö stig.
Dominos-deild karla Mest lesið John Cena hættur að glíma Sport Salah skráði sig á spjöld sögunnar í endurkomunni í dag Enski boltinn „Ég bið Lionel Messi innilega afsökunar“ Fótbolti Segir Norðmönnum að setja hana í karlalandsliðið sitt Handbolti Sjáðu sjálfsmörkin sem björguðu Arsenal og hetju Liverpool skora tvö Enski boltinn Þjálfari Orra Steins látinn fara Fótbolti Lunga NFL-stjörnu féll saman eftir nálastungumeðferð Sport Valin kona ársins í akstursíþróttum á sautján ára afmælisdaginn Formúla 1 Hundrað ára vaxtarræktarkappi Sport Völsungar ráða ævintýramann sem þjálfara Sport Fleiri fréttir Elvar leiddi liðið til sigurs Tryggvi lét mest til sín taka Wembanyama sneri aftur í sigri gegn meisturunum Jónína Þórdís gældi við þrennuna og Ármann fór áfram í bikarnum Sara Rún með sigurkörfuna í ótrúlegri endurkomu Keflavíkur Kjartan Atli lætur af störfum Körfuboltakvöld í áfalli yfir vörn Álftaness: „Bara kjánalegt að horfa á þetta“ Curry sneri aftur með miklum látum Uppgjörið:Njarðvík - Þór Þorlákshöfn 92-93| Stigin til Þorlákshafnar eftir háspennu Álftanes - Tindastóll 78-137 | Metin slegin í stórsigri Stólanna „Get ekki verið fúll út í mína menn“ Fyrsti sigurinn í rúman mánuð: „Sýndum í dag að við erum með gott lið“ Uppgjörið: KR - ÍR 102-96 | Langþráður KR-sigur ÍA - Stjarnan 85-115 | Meistararnir búnir að finna gírinn Uppgjörið: Valur - Keflavík 111-91 | Valur þurfti ekki að hafa mikið fyrir fimmta sigrinum í röð Uppgjörið: Grindavík - Ármann 105-85| Nýliðarnir létu toppliðið vinna fyrir kaupinu sínu Hafa jafnað við metlið Golden State Warriors Uppgjörið: Njarðvík-Valur 94-90| Frábær endurkomu sigur skilar Njarðvík toppsætinu Stjarnan steig á bensíngjöfina og kláraði Tindastól að lokum Tryggvi hafði hægt um sig í sigri „Ég er yfirleitt ekki með neinn kjaft“ Leik lokið: Ármann 70 - 106 Grindavík | Stórsigur Grindavíkur á lánlausum nýliðum Leik Lokið: Haukar 86 - 92 KR | Nýliðarnir höfðu betur gegn meisturunum Fyrsti sigur Hamars/Þórs kom gegn Keflavík Tindastóll með fellu gegn Keilu í Eistlandi Söguleg frammistaða á Extra-leikunum: „Ég get ekki svekkt mig á þessu“ „Hann er ekkert eðlilega mikilvægur “ Rekinn út úr húsi vegna viðbragða þegar mótherji ætlaði að hlera leikhléið „Hortugasta klapp sem ég hef séð“ „Ég myndi bróka hann inn í klefa“ Sjá meira