ÍR-ingum létt eftir sigur á Akureyri 5. mars 2009 22:43 Hreggviður Magnússon, leikmaður ÍR. Mynd/Daníel "
Þetta var heldur betur stór sigur," sagði Hreggviður Magnússon, ÍR-ingur, eftir 90-96 sigurinn á Þór á Akureyri í kvöld. Honum virtist létt enda ÍR hársbreidd frá því að missa leikinn úr höndunum í lokin. "Þetta var stærsti leikurinn okkar til þessa, við þurftum að vinna hann til að halda sjötta sætinu með Beiðablik skammt undan," sagði Hreggviður. "Við lögðum upp með að mæta einbeittir til leiks og við vissum að þeir myndu mæta grimmir líka, í þessari fallbaráttu sinni. Þeir settu góð skot og voru einbeittir í vörninni og það var oft erfitt að uppskera. En við vorum þolinmóðir og lögðum upp með að finna opnu skotin, við vildum frekar senda aukasendingu en að reyna sjálfir. Að mínu mati fengum við mikið af þessum skotum og þetta gekk því upp," sagði Hreggviður sem neitar því að hafa fundið fyrir stressi undir lokin þegar Þór var kominn yfir. "Nei, alls ekki. Það eru mörg lið sem eru að heyja mikla baráttu og það er ekki mikið á milli þessara liða. Það er algengt svona undir lok tímabils að leikirnir eru jafnir. Við höfum lent í því á síðustu mínútum leikja að vera örlítið undir eftir að hafa verið yfir, en leikurinn er 40 mínútur og maður spilar leikinn bara til enda," sagði Hreggviður. Hann hlakkar til að mæta Grindavík á sunnudaginn og byrja síðan úrslitakeppnina. "Við höfum verið nokkuð öflugir í bikarkeppnum undanfarin ár og teljum okkur vera öfluga þegar við þurfum að standa okkur," sagði Hreggviður Magnússon að lokum.
Dominos-deild karla Mest lesið „Viljum ekki drepa þig en nú er nóg komið“ Fótbolti Lygilegur viðsnúningur Argentínu Fótbolti Belgar stigu Trump-dans og skutu föstum skotum Fótbolti Maður dagsins á HM: Feimni boltastrákurinn sem gerði gestgjöfunum grikk Fótbolti Allt að verða vitlaust í Noregi: „Þjóðin komin með mjög óraunhæfar væntingar“ Fótbolti Frakkar áfrýja spjaldi til FIFA Fótbolti Rodri skammaðist sín og baðst fyrirgefningar Fótbolti Kallar Infantino trúð: „Sleikjandi rassgatið á ríku köllunum“ Fótbolti Infantino gefur út yfirlýsingu vegna afskipta Trumps Fótbolti Skoraði á HM en nær ekki að spila í Fossvogi Fótbolti Fleiri fréttir Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Keflavík sækir liðsstyrk „Alltaf sami tómleiki þegar fjölskyldan er ekki þar“ Ný lið bætast við Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Sjá meira