Hársbreidd frá því að gera jafntefli við besta lið í heimi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. mars 2009 18:12 Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari kvenna. Mynd/Rósa
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari var ánægður með frammistöðu íslenska landsliðsins gegn Bandaríkjunum á Algarve-bikarnum í dag en hann var að sjálfsögðu svekktur með að hafa fengið á sig mark í blálokin. "Þetta var svo góður leikur taktískt fyrir okkur og líka það að finna að við eigum í fullu tré við lið af þessum kalíber í 90 mínútur. Það er frábært fyrir okkur og gefur okkur þvílíkt sjálfstraust fyrir framhaldið," sagði Sigurður Ragnar eftir leikinn. "Við héldum skipulaginu mjög vel, lokuðum svæðum og þegar þær komu inn á okkar svæði þá pressuðum við á þær. Liðið náði líka að halda boltanum ágætlega þegar við unnum hann. Stelpurnar þorðu að hafa boltann og við fengum slatta af hornum og aukaspyrnum," sagði Sigurður Ragnar og bætti við. "Það var ekki eins og við höfum pakkað í vörn." Sigurður Ragnar horfir björtum augum á næstu leiki liðsins á mótinu en síðasti leikurinn í riðlinum verður gegn Danmörku á mánudaginn. Sigurvegarinn í þeim leik spilar um 3. sætið í Algarve-bikarnum. "Þessi leikur veitir okkur sjálfstraust því þetta á að heita besta lið í heimi og við vorum hársbreidd frá því að gera jafntefli við þær. Vonandi höldum við áfram að bæta okkur sem lið," sagði landsliðsþjálfarinn að lokum.
Íslenski boltinn Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira