Phoenix tapaði fyrsta heimaleiknum á tímabilinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. desember 2009 09:00 LeBron James og félagar í Cleveland fagna góðri körfu í nótt. Mynd/AP
Cleveland Cavaliers varð fyrsta liðið til að vinna í Phoenix á þessu NBA-tímabili þegar liðið vann 109-91 sigur í nótt. Phoenix Suns var búið að vinna alla tíu heimaleiki sína til þessa og alls 19 heimaleiki í röð. LeBron James og Mo Williams voru í aðalhlutverki þegar Cleveland skoraði 15 stig í röð í fjórða leikhlutanum en þeir voru stigahæstir hjá Cavs, James skoraði 29 stig og Williams var með 24 stig. Steve Nash var með 18 stig og 10 stoðsendingar hjá Phoenix. Sacramento Kings vann ótrúlegan 102-98 sigur á Chicago Bulls þrátt fyrir að lenda mest 35 stigum undir. Bulls-liðið var meðal annars 83-50 yfir þegar 7 mínútur voru eftir af þriðja leikhluta. Nýliðinn Tyreke Evans skoraði 23 stig fyrir Kings þar af 9 stig gegn 3 hjá öllu Chicago-liðinu síðustu tvær mínútur leiksins. Luol Deng (26 stig) og Derrick Rose (24 stig) voru atkvæðamestir hjá Chicago. Tony Parker var með 19 stig í 103-97 sigri San Antonio Spurs á Los Angeles Clippers en alls skoruðu sjö leikmenn Spurs yfir tíu stig. Chris Kaman var með 23 stig og 15 fráköst hjá Clippers. J.J. Redick var með 20 stig og Rashard Lewis skoraði 18 stig í 104-99 sigri Orlando Magic á Utah Jazz. Paul Millsap var með 23 stig fyrir Utah-liðið. Ástralinn Andrew Bogut var með 31 stig og 18 fráköst í 84-81 sigri Milwaukee Bucks á Indiana Pacers. Roy Hibbert (16 stig) og Troy Murphy (14 stig og 12 fráköst) voru atkvæðamestir hjá Indiana.
NBA Mest lesið Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? Fótbolti Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Íslenski boltinn „Ég verð að spila“ Enski boltinn Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Fótbolti Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira