Guðbjörg verður í markinu á móti Dönum á morgun Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. júlí 2009 15:30 Guðbjörg Gunnarsdóttir fær tækifæri á móti Dönum á morgun. Mynd/Stefán
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari kvenna í fótbolti, tilkynnir ekki byrjunarlið sitt í æfingaleik á móti Dönum fyrr en í kvöld en þjóðirnar mætast á Englandi á morgun. Það er löngu ákveðið að Guðbjörg Gunnarsdóttir verður í markinu en Þóra Björg Helgadóttir var í markinu á móti Englandi. „Þær fá sitthvorn leikinn í þessari ferð. Ég tilkynnti öllum hópnum það að við myndum láta Þóru spila fyrri leikinn og Guðbjörgu seinni leikinn. Við búum að því að eiga tvo frábæra markmenn og ég skildi líka eftir tvo til þrjá frábæra markmenn heima. Að minnsta kosti einn markmaður þar bætist inn í lokakeppnishópinn," segir Sigurður Ragnar. „Þær eru báðar búnar að spila það vel með sínum félagsliðum og það líka erfiðara að fylgjast með þeim þegar þær eru erlendis. Við vildum því gefa þeim sitthvorn leikinn og síðan verðum við bara að sjá hvernig þær standa sig," segir Sigurður Ragnar. Þóra stóð sig frábærlega í leiknum á móti Englandi, hélt marki sínu hreinu og var mjög örugg í sínum aðgerðum. Sigurður Ragnar viðurkennir alveg að það verði mjög erfitt fyrir sig að velja hvor þeirra stendur í markinu á EM í Finnlandi. „Það er hluti að starfinu að taka erfiðar ákvarðanir og fyrir það fær maður víst borgað. Þetta verður alltaf ákvörðun sem verður umdeild, hvorn markmanninn sem maður velur," segir Sigurður Ragnar.
Íslenski boltinn Mest lesið Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Fótbolti Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Fótbolti Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Enski boltinn „Það var erfitt að anda“ Íslenski boltinn Júlía Kristín sló Íslandsmet á HM Sport Arsenal - Man. City | Fyrsti titill tímabilsins í boði Enski boltinn Verður Kepa aftur skúrkurinn? Enski boltinn Á sjúkrahús eftir yfirlið á landsleiknum Handbolti Dagskráin: Úrslitaleikur Arsenal og City Sport Þórsarar stofna söfnunarreikning vegna sektar KKÍ Körfubolti Fleiri fréttir „Það var erfitt að anda“ Víkingar unnu titil og tvo leiki sama dag Sjáðu öll mörkin, rauða spjaldið og vítin þegar Fylkir fagnaði titlinum Fylkir - KR 8-7 | Ólafur Kristófer hetja Fylkis sem vann Lengjubikarinn í fyrsta skipti „Glasið er hálffullt hérna í Vesturbænum“ Hyggst læra af mistökum Stjörnunnar og sér tækifæri gegn KR Sýning hjá Hrafnhildi Ásu í kvöld 37 ára Gylfi stefnir á EM 2028 Sögulegur samningur Víkinga Þjálfari HK-kvenna braut siðareglur „Hausinn minn ekki víraður eins og hinir“ Heimir Guðjóns er kominn með Fylkismenn alla leið í úrslitaleikinn Kemur alltaf í Þór Blikakonur með þriðja stórsigurinn í röð Sjáðu mörkin er KR valtaði yfir Stjörnuna og flaug áfram í úrslitaleikinn Fimmtán ára skoraði tvö þegar KR fór í úrslit Íslenskukunnáttan takmarkast við „kjúklingawingers“ Tilfinningarík kveðjustund eftir þriggja ára baráttu David James þjálfar markverði Vals Sektir fyrir klúður í skýrslu og brotthvarf í hálfleik Föstudagsfjör hjá KA: Svíi mættur í kjölfar Danijels Danijel Djuric gerir þriggja ára samning við KA Valsmenn hafi sýnt vanvirðingu: „Gamla góða kjaftæðið“ „Gátum ekki látið hann stjórna því“ Baldé snýr aftur til bikarmeistaranna Fylkir á barmi undanúrslita eftir sigur á ÍBV Sjáðu fimmu Atla Sigurjóns á móti Val í gær Fleury fór á kostum gegn FH Atli Sigurjóns skoraði fimm mörk og fór illa með Val Víkingurinn fljótur að láta til sín taka í Keflavík Sjá meira