Sævar: Kom ekkert annað til greina en að klára þetta Ómar Þorgeirsson skrifar 19. september 2009 19:45 Sævar Þór Gíslason hefur farið á kostum með Selfossi undanfarin þrjú tímabil. „
Það er ekkert annað hægt en að fagna vel. Lokahófið okkar er í kvöld og Sálin að spila og allt bara í gangi," segir markvarðahrellirinn Sævar Þór Gíslason hjá Selfossi eftir 4-2 sigur gegn ÍA í lokaumferð 1. deildar í dag. Selfoss hampaði 1. deildar titlinum fyrir vikið og Sævar Þór ítrekaði að ekkert annað hefði komið til greina en að klára dæmið með stæl. „Þessi dagur er mjög stór í sögu Selfoss þar sem fyrir utan sigurinn í deildinni þá var verið að jarðsyngja einn dyggasta stuðningsmann Selfoss í dag. Hann sá okkur fara upp á móti Aftureldingu þar sem hann var sérstaklega keyrður af sjúkrahúsinu til þess að fara á leikinn og hann dó svo 10. september. Það kom því ekkert annað til greina en að klára þennan leik fyrir hann," segir Sævar sem endaði tímabilið sem markakóngur deildarinnar með 19 mörk í 21 leik. „Já, það var mikil pressa á mér að klára þetta með þrennu til þess að vera með mark að meðaltali í leik með Selfossi en ég er kominn með 56 mörk í 58 leikjum með Selfossi þessi þrjú tímabil síðan ég kom aftur. Það er ekki slæmt en ég á náttúrulega liðinu allt að þakka fyrir þetta. Allt í kringum þetta lið er líka frábært og það er einstakt að fá að upplifa þetta á heimaslóðum," segir Sævar Þór sem hefur fullan hug á því að spila með Selfossi í efstu deild næsta sumar. „Ef skrokkurinn verður í lagi, þá held ég áfram. Það er ekki spurning með það því hjartað mitt slær með þessu liði og hér líður mér best," segir Sævar Þór.
Íslenski boltinn Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira