NBA í nótt: Toronto lagði Houston Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 14. desember 2009 09:27 Chris Bosh og Hedo Turkoglu voru frábærir í nótt. Mynd/AP
Fimm leikir fóru fram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt þar sem Toronto vann til að mynda góðan sigur á Houston á heimavelli, 101-88. Hedo Turkoglu kom til Toronto frá Orlando í sumar og var með 23 stig í leiknum í nótt en það er persónulegt met hjá honum í vetur. Chris Bosh var stigahæstur með 27 stig. Þetta var þriðji sigur Toronto í vetur gegn liði sem er með jákvætt sigurhlutfall en Toronto var með forystuna allan leikinn. Hjá Houston var Carl Landry með 25 stig, Luis Scola 21 og fimmtán fráköst og Aaron Brooks 20. Trevor Ariza, stigahæsti leikmaður Houston í vetur, skoraði aðeins eitt stig í leiknum og var svo vísað af velli í þriðja leikhluta fyrir að reyna að slá til andstæðings. Memphis vann Miami, 118-90. Rudy Gay skoraði 41 stig fyrir Memphis sem er persónulegt met. Marc Gasol skoraði sextán stig og tók fimmtán fráköst. Atlanta vann New Jersey, 130-107. Maurice Evans skoraði 22 stig og Joe Johnson var með 21 stig og tíu stoðsendingar. Cleveland vann Oklahoma City, 102-89. LeBron James skoraði 44 stig sem er það mesta sem hann hefur verið með í einum leik í vetur. San Antonio vann LA Clippers, 115-90. Tim Duncan var með 21 stig þó svo að hann hafi hvílt í fjórða leikhluta. Richard Jefferson og Manu Ginobili voru með sautján stig hvor.
NBA Mest lesið Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? Fótbolti Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Íslenski boltinn „Ég verð að spila“ Enski boltinn Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Fótbolti Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira