Fær líflátshótanir frá mafíunni Henry Birgir Gunnarsson skrifar 7. desember 2009 11:00 Donaghy sést hér með Kobe Bryant.
Fyrrum NBA-dómarinn Tim Donaghy reynir það sem hann getur til þess að bjarga glötuðu orðspori sínu. Hann heldur því nú fram að hann hafi ekki reynt að hagræða úrslitum leikja þó svo það þýddi að hann tapaði peningum og fengi mafíuna upp á móti sér. Í einum leik þar sem hann hafði veðjað á sigur San Antonio þá rak Donaghy þjálfara Spurs, Gregg Popvich, út úr húsi í fyrsta leikhluta. Spurs tapaði leiknum, Donaghy tapaði peningum sem og margir mafíósar sem treystu á upplýsingar Donaghy er kom að úrslitum NBA-leikja. „Ég sagði þeim að ég myndi ekki dæma viljandi gegn einhverju liði þó svo ég hefði lagt pening á leikinn. Ég sagði líka að ég gæti ekki tryggt úrslit allra leikja og þeir yrðu bara að sætta sig við það," sagði Donaghy við fréttaskýringaþáttinn 60 mínútur. FBI styður þessa frásögn Donaghy en FBI hefur rannsakað mál Donaghy ítarlega. Donaghy segist hafa unnið í 75 prósent af þeim skiptum sem hann veðjaði á leiki í NBA-deildinni. Mafían fékk upplýsingar lengi vel frá Donaghy um hvaða lið væru líkleg til þess að vinna ákveðna leiki. Til að setja pressu á "rétt úrslit" þá hótaði mafían fjölskyldu Donaghy. Þegar FBI komst á snoðir um málið þá vann Donaghy viljandi með yfirvöldum. Hann segist enn fá líflátshótanir frá mafíunni.
NBA Mest lesið Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? Fótbolti Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Íslenski boltinn „Ég verð að spila“ Enski boltinn Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Fótbolti Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Körfubolti Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira