Tapar Denver tólfta leiknum í röð gegn Lakers? 21. maí 2009 17:47 Carmelo Anthony var stórkostlegur í fyrsta leiknum og skoraði 39 stig NordicPhotos/GettyImages
Kobe Bryant og félagar í LA Lakers sluppu með skrekkinn þegar þeir lögðu Denver Nuggets 105-103 í fyrsta leik liðanna í úrslitum Vesturdeildarinnar í NBA í fyrrakvöld. Kobe Bryant skoraði 40 stig fyrir Lakers í leiknum, þar af sex stig á vítalínunni á síðustu hálfu mínútunni. "Við sluppum fyrir horn í þetta skiptið. Svona er þetta stundum," sagði Bryant glottandi eftir leikinn. Denver var með fyrsta leikinn í hendi sér frá fyrstu mínútu og það var fremur fyrir klaufaskap Denver en hetjuskap Lakers sem staðan er 1-0 fyrir Vesturdeildarmeistarana. Annar leikur liðanna er í Staples Center í Los Angeles klukkan eitt í nótt og verður hann sýndur beint á Stöð 2 Sport. Denver hefur tapað ellefu leikjum í röð fyrir Lakers í úrslitakeppni - þar af öllum fjórum í fyrra þegar Lakers sópaði liðinu út 4-0 í fyrstu umferð. Einvígið í ár ætti þó að verða eitthvað meira spennandi ef marka má fyrsta leikinn. "Við spiluðum vel í 46,5 mínútur en misstum leikinn úr höndum okkar. Það var samt margt mjög jákvætt við þennan leik," sagði Kenyon Martin leikmaður Denver, sem verið hefur tæpur vegna meiðsla líkt og J.R. Smith félagi hans. "Við verðum bara að útrýma þessum mistökum og halda áfram. Það er það góða við svona einvígi - það kemur alltaf annar leikur," sagði Martin.
NBA Mest lesið Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Enski boltinn Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Fótbolti Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Enski boltinn Markvörður Eista meiddur Fótbolti Littler tapaði óvænt á heimsmeistaramóti unglinga Sport „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Fótbolti Ronaldo snúinn aftur til félagsliðsins Fótbolti Selfoss missir mikið efni Íslenski boltinn Gylfi með til Eistlands Fótbolti Fleiri fréttir Hefur sitt 40. tímabil: „Eins og að bera saman epli og appelsínur“ „Við þurfum að gera margt betur“ Grindavík - KR 79-106 | Yfirburðir bikarmeistaranna Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Sjá meira