Hólmfríður: Við kláruðum þennan leik með stæl Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. september 2009 22:49 Hólmfríður Magnúsdóttir skoraði þrennu í seinni hálfleik. Mynd/Vilhelm
Hólmfríður Magnúsdóttir var kát í leikslok eftir 12-0 sigur á Eistlandi í kvöld. Hólmfríður reyndi mikið í leiknum og átti alls tólf skot að marki eistneska liðsins og þar af enduðu þrjú þeirra í markinu. „Þetta var skrítinn leikur. Þær voru ekkert að spila fótbolta þannig að þetta var sóknarleikur fyrir okkur. Ég var mjög ánægð að við náðum að halda leikinn út því það er ekki alltaf sem maður nær aðhalda einbeitingu í 90 mínútur í svona leik," sagði Hólmfríður eftir leikinn. „Þetta stefndi vissulega í eitthvað skrautlegt frá byrjun en ég var mjög ánægð með karakterinn í liðinu og að við náðum allar að einblína á það að klára leikinn í 90 mínútur og pressa þær allan tímann. Við sköpuðum okkur mikið af færum og kláruðum þennan leik með stæl," sagði Hólmfríður. Hólmfríður þurfti að bíða eftir fyrsta marki sínu fram á fjórðu mínútu seinni hálfleiks en þá brast stíflan og hún skoraði tvö til viðbótar í seinni hálfleik og kórónaði þrennuna sína. „Þetta var ekki alveg að fara inn hjá mér í fyrri hálfleik en við vorum samt 7-0 yfir þannig að það var fyrir öllu. Það er náttúrulega bara bónus að fá að skora líka," sagði Hólmfríður. „Næsti leikur er á móti Frökkum og við förum að sjálfsögðu í hann til að vinna. Við allar í toppformi og vitum að við getum unnið Frakkana. Ég hlakka bara til að fara að spila á móti þeim," sagði Hólmfríður að lokum.
Íslenski boltinn Mest lesið Stjarnan - KR | Barist um bikarinn Körfubolti United fagnaði fjórða sigrinum í röð Enski boltinn „Vona að við getum haldið Ólympíuleika sem snúast ekki um typpi“ Sport Risa sigur fyrir Leeds United Enski boltinn Biður Liverpool að slaka á reglunum Enski boltinn Búast við yfir tuttugu og sex milljón meldingum um veikindi Sport Arsenal - Sunderland | Snúið próf fyrir toppliðið Enski boltinn Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport Fær fjögurra leikja bann og missir af Lundúnaslagnum Enski boltinn Dagskráin í dag: Risa dagur í enska boltanum Enski boltinn Fleiri fréttir Lengjubikarinn: Fylkir vann Breiðablik og FH skoraði sjö FH sækir sænskan miðvörð „Skrítið að klæðast grænu en það mun venjast hratt“ Samþykkti að taka slaginn en sleit strax hásin Vinna hafin en langur vegur að stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti „Kannski ekki með sömu FH-gleraugu og margir aðrir þjálfarar“ Böðvar kominn til ÍA frá FH Víkingar keyptu Helenu af Val Stjarnan sækir miðvörð að vestan Kralj fer til Keflavíkur Meistararnir fá liðsstyrk af Akranesi „Búið að vera smá erfitt fyrir hausinn en svona gerist“ Bragi Karl stimplaði sig inn með marki í fyrsta leik Íslandsmeistararnir byrja vel og KR sótti sigur á Akureyri Valur er Reykjavíkurmeistari árið 2026 Davíð Smári sækir fleiri leikmenn úr bikarævintýrinu Varafyrirliða FH sagt að finna sér nýtt félag Berglind Björg ólétt Fram fær liðsstyrk úr Mosó og markvörðurinn framlengir Heiðdís leggur skóna á hilluna Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Sjá meira