Bryon Russell vill fá að spila við Jordan einn á einn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. september 2009 08:30 Michael Jordan fer framhjá Bryon Russell. Mynd/AFP
Michael Jordan gerði grín að Bryon Russell, fyrrum leikmanni Utah Jazz, í ræðu sinni þegar hann var tekinn inn í Frægðarhöll bandaríska körfuboltans á föstudaginn. Russell var að dekka Jordan þegar hann skoraði sigurkörfuna í síðasta leiknum sínum fyrir Chicago Bulls árið 1998. Russell flaug á rassinn eftir að hafa fengið smá hjálp frá Jordan og Jordan tryggði Bulls sjötta meistaratitilinn á átta árum. Jordan talaði um í ræðu sinni að þeir hafi spilað leik eftir að Jordan hætti í fyrsta skiptið. Jordan var þá að spila hafnarbolta en kom við í æfingasal Chicago Bulls þar sem Utah Jazz var á æfingu. Russell var þá nýliði hjá jazz-liðinu og kom til Jordan, kynnti sig og bauð í hann einn á einn. „Á þessari stundu var ég ekkert að hugsa um að koma aftur eða spila aftur körfubolta," sagði Jordan. „Bryon Russell kom til mín og spurði: Af hverju hættir þú. Þú vissir að ég gæti stoppað þig. Ef ég sé þig einhvern tímann í stuttbuxum," rifjaði Jordan upp í ræðunni en hann átti síðan eftir að fara illa með Russell í úrslitakeppninni nokkrum árum síðar. Bryon Russell var ekkert alltof sáttur með að Jordan hafi verið að gera grín að sér og sendi Jordan skilaboð: „Hvenær sem þú ert tilbúinn þá mun ég bíða eftir þér í Kaliforníu í körfuboltabuxunum. Ég mun spila við þig hvenær sem er og ég bíð hér með í þig einn á einn," skrifaði Russell og bætti við: „Hann hlýtur að geta flogið hingað á einkaflugvélinni sinni því hann á milljónir dollara og hefur efni á því. Við getum hist í Recreation Center og spilað," skrifar Russell sem hefur þurft í mörg ár að horfa upp á sjálfan sig sitjandi á rassinum á meðan Jordan er að setja "Skotið" niður.
NBA Mest lesið Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? Fótbolti Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Ég verð að spila“ Enski boltinn Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Íslenski boltinn Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Fótbolti Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Körfubolti Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira