NBA í nótt: Meistararnir í vandræðum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 9. maí 2009 11:15 Dwight Howard í leiknum í nótt. Nordic Photos / Getty Images
Boston tapaði í nótt fyrir Orlando í þriðja leik liðanna í undanúrslitum Austurdeildarinnar í NBA-körfuboltanum í nótt, 117-96. Þar með tók Orlando 2-1 forystu í einvíginu. Dwight Howard fór mikinn í leiknum fyrir Orlando sem lék á heimavelli í nótt. Howard skoraði sautján stig, tók fjórtán fráköst og varði fimm skot. Rashard Lewis bætti við 28 stigum fyrir Orlando og Hedo Turkoglu 24. Rafer Alston tók út leikbann í nótt fyrir að slá til Eddie House í síðasta leik liðanna. Paul Pierce náði sér loksins á strik og skoraði 27 stig. Rajon Rondo var með fimmtán. Boston náði að minnka 20 stig forskot í sjö í fjórða leikhlutanum áður en Orlando tók aftur öll völd í leiknum og kláraði hann með stæl. LA Lakers vann Houston, 108-84, á útivelli og náði þar með 2-1 forystu í einvígi liðanna í undanúrslitum Vesturdeildarinnar. Houston vann fyrsta leikinn nokkuð óvænt á heimavelli Lakers en þeir síðarnefndu náðu að hefna fyrir það í nótt. Kobe Bryant skoraði 33 stig fyrir Lakers. Lamar Odom var með sextán stig og þrettán fráköst. Derek Fisher tók út leikbanní nótt en í hans stað var Jordan Farmar í byrjunarliðinu og var með tólf stig og sjö stoðsendingar. Ron Artest var rekinn af velli í öðrum leiknum í röð, í þetta sinn fyrir gróft brot á Pau Gasol á lokamínútu leiksins. Yao Ming var með nítján stig og fjórtán fráköst fyrir Houston. Artest var með 25 stig.
NBA Mest lesið Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Enski boltinn Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Fótbolti Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Enski boltinn Markvörður Eista meiddur Fótbolti Littler tapaði óvænt á heimsmeistaramóti unglinga Sport „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Fótbolti Ronaldo snúinn aftur til félagsliðsins Fótbolti Selfoss missir mikið efni Íslenski boltinn Gylfi með til Eistlands Fótbolti Fleiri fréttir Hefur sitt 40. tímabil: „Eins og að bera saman epli og appelsínur“ „Við þurfum að gera margt betur“ Grindavík - KR 79-106 | Yfirburðir bikarmeistaranna Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Sjá meira