Sigurður: Viljandi hjá Kára Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 28. apríl 2009 16:08 Sigurður Eggertsson í leik með Val gegn Haukum. Mynd/Arnþór
Sigurður Eggertsson, leikmaður Vals, segir að Kári Kristján Kristjánsson Haukamaður hafi viljandi gefið sér olnbogaskot sem varð til þess að hann rifbeinsbrotnaði í leik liðanna í gær. Sigurður fór meiddur af velli í síðari hálfleik og kom í ljós eftir leikinn að hann er með brotið rifbein. Hann getur því ekkert spilað meira með Val í úrslitakeppninni. Haukar unnu leikinn í gær, 29-24, og hafa tekið forystu í einvígi liðanna um Íslandsmeistaratitilinn. „Þetta var fullmikið viljandi hjá honum," sagði Sigurður aðspurður um atvikið. „Ég sannfærðist enn meira um það eftir að hafa séð þetta í sjónvarpi." Kári Kristján hringdi í Sigurð eftir leikinn til að biðjast afsökunar og efast Sigurður um að hann hafi ætlað að meiða sig. „Engu að síður er þetta frekar skítt. Ég hef áður fengið olnbogaskot en ekki brotið rifbein. Það er auðvitað fáránlega svekkjandi að geta ekki spilað meira með liðinu - sérstaklega þar sem ég hef aldrei verið svona góður í sókn áður. Mér finnst ég hafa verið voða fínn upp á síðkastið í sóknarleiknum." Valur hefur misst marga leikmenn í meiðsli á leiktíðinni en auk Sigurðar eru þeir Ernir Hrafn Arnarson, Baldvin Þorsteinsson, Fannar Friðgeirsson frá vegna meiðsla og nafnarnir Sigfús Páll Sigfússon og Sigfús Sigurðsson tæpir vegna sinna meiðsla. „Þetta er slatti af leikmönnum sem við höfum misst. En það er þó möguleiki að fá þá Dag Sigurðsson og Markús Mána Michaelsson aftur í liðið og eru það leikmenn sem kunna þetta. Þeir eru kannski svolítið ryðgaðir en verða vonandi þá þeim mun grófari. Það þarf jú að hefna," sagði Sigurður og hló. Hann segist þrátt fyrir allt vera bjartsýnn fyrir framhaldið. „Ég er kannski það vitlaus en ég er alltaf bjartsýnn."
Olís-deild karla Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Finnur til með Arnari Handbolti Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sport Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Enski boltinn „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Íslenski boltinn Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Enski boltinn Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira