Að verða búnar að spila saman í 1000 mínútur í röð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. mars 2009 14:19 Katrín Jónsdóttir og Guðrún Sóley Gunnarsdóttir. Mynd/Vilhelm
Knattspyrnuþjálfarar eru flestir á því að grunnur að góðu liði sé að hafa stöðugleika í miðri vörninni, trausta og skynsama leikmenn sem skila alltaf sínu. Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari kvenna í fótbolta, er engin undantekning á þeirri reglu enda eru miðvarðarpar kvennalandsliðsins að ná skemmtilegum áfanga gegn Dönum í dag. Þær Katrín Jónsdóttir og Guðrún Sóley Gunnarsdóttir eru að sjálfsögðu í byrjunarliði íslenska kvennalandsliðsins sem mætir Dönum á eftir í lokaleik sínum í riðlakeppni Algarve-bikarsins. Þær hafa nefnilega byrjað inn á í öllum 23 leikjunum undir stjórn Sigurðar Ragnars Eyjólfssonar. Þær Katrín og Guðrún Sóley hafa gert meira en að byrja alla leiki frá og með 2007 því þær hafa spilað nánast hverja eina einustu mínútu í þessum 23 leikjum. Guðrún Sóley hefur aðeins misst úr 44 af 2070 mínútum og Katrín hefur aðeins verið útaf í 85 mínútur. Hvorugri þeirra hefur verið skipt útaf í síðustu ellefu landsleikjum eða síðan Sigurður Ragnar tók þær báðar af velli í lokin í 3-0 sigri á Portúgal á Algarve-bikarnum á síðasta ári. Frá þeim tíma hafa þær stöllur spilað hlið við hlið í íslensku vörninni í 990 mínútur í röð og ná því þeim árangri að spila þúsund mínútur saman í röð í upphafi leiks Íslands og Danmerkur á eftir.
Íslenski boltinn Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira