NBA í nótt: Miami vann Atlanta Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 5. janúar 2010 09:00 Dwyane Wade í leiknum í nótt. Mynd/AP
Miami vann í nótt sigur á Atlanta, 92-75, í NBA-deildinni í körfubolta í nótt og batt þar með enda á þriggja leikja taphrinu liðsins. Dwyane Wade skoraði 28 stig í leiknum og tók átta fráköst. Michael Beasley var með 22 stig, þar af 20 í fyrri hálfleik. Udonis Haslem var með tólf stig. Atlanta náði sér engan veginn á strik í leiknum en liðið hefur aldrei fyrr í vetur skorað jafnfá stig í einum leik eða hitt jafn illa utan af velli (35,2 prósent). Jamal Crawford skoraði 23 stig fyrir Atlanta sem hefur nú tapað fjórum leikjum í röð en það er í fyrsta sinn síðan í janúar á síðasta ári sem það gerist. Oklahoma City vann Chicago, 98-85. Russell Westbrook skoraði 29 stig og Kevin Durant 25 fyrir Oklahoma City sem gerði út um leikinn í þriðja leikhluta. New Orleans vann Utah, 91-87, þar sem Chris Paul stal boltanum og skoraði mikilvæga körfu þegar 27 sekúndur voru til leiksloka. Þetta var fyrsti sigur New Orleans í Utah í tæp fjögur ár. LA Clippers vann Portland, 105-95. Chris Kaman var með 20 stig og Eric Gordon nítján fyrir Clippers.
NBA Mest lesið Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Handbolti Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Enski boltinn Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Enski boltinn Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Fótbolti Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Geta bætt upp fyrir leikinn á Laugardalsvelli Sport Littler tapaði óvænt á heimsmeistaramóti unglinga Sport „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Fótbolti Fleiri fréttir Hefur sitt 40. tímabil: „Eins og að bera saman epli og appelsínur“ „Við þurfum að gera margt betur“ Grindavík - KR 79-106 | Yfirburðir bikarmeistaranna Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Sjá meira