Spáir verðhjöðnun í júlí, verðbólgan lækkar í 5,2% 20. júlí 2010 11:04
Greiningardeild Arion banka gerir ráð fyrir 0,25% verðhjöðnun í júlí sem mun lækka 12 mánaða verðbólgu niður í 5,2%, úr 5,7%. „Helsta ástæðan fyrir því að við spáum lækkun er tímabundin áhrif frá sumarútsölum þennan mánuð. En þar fyrir utan hefur styrking krónunnar sl. mánuði dregið niður ýmsa liði vísitölunnar. Á hinn bóginn mun eldsneytisverð hafa áhrif til hækkunar," segir í Markaðspunktum greiningarinnar. Helstu atriði til grundvallar spá greiningarnnar eru að síðustu tvö ár hafa sumarútsölur á fatnaði lækkað vísitölu neysluverðs um 0,4-0,5% í júlí, og gerir greiningin ráð fyrir svipuðum áhrifum nú. Reynslan sýnir hinsvegar að útsöluáhrifin ganga að mestu til baka í ágúst og september, og verka þá til hækkunar verðlags. Eldsneytisverð hefur hækkað frá síðustu mælingu Hagstofunnar og jafngildir hækkunin um 0,15% áhrifum til hækkunar á vísitölu neysluverðs. Af öðrum áhrifaþáttum verðbólgunnar má nefna að þótt verð á nýjum bílum hafi lækkað töluvert í júní, þá komu áhrif þess ekki fram í vísitölu neysluverðs. Hugsanlegt er að áhrifin komi að einhverju leyti fram í júlí eða á næstu mánuðum. Hvað horfur til lengri tíma varðar segir í Markaðspunktunum að í ágúst og september mun verðlag hækka meira en ella vegna útsöluloka, þ.e. þegar útsölur júlímánaðar ganga til baka. „Á hinn bóginn teljum við fáa aðra verðbólguhvetjandi þætti til staðar aðra en væntanlegar gjaldskrárhækkanir orkufyrirtækja og hins opinbera. Hér verður að hafa í huga að kaupmáttur heimila er enn að dragast saman, atvinnuleysi er í hámarki og innlend eftirspurn því enn lítil. Síðast en ekki síst hefur krónan verið að styrkjast síðastliðið hálft ár og gengisvæntingar eru því líklega jákvæðari nú en fyrir 6 mánuðum. Ólíklegt er því að verðbólgan rjúki upp meðan helstu forsendur, s.s. um stöðugt gengi, standast. Langtímaspá okkar gerir ráð fyrir að það dragi hratt úr verðbólgunni á seinni helmingi ársins. Í lok árs gerum við ráð fyrir að tólf mánað verðbólga verði komin í kringum verðbólgumarkmið Seðlabankans. Óvissan til skemmri tíma í spá okkar snýr einna helst að húsnæðisliðnum en erfitt hefur reynst að spá fyrir um þróun þess á undanförnu," segir í Markaðspunktunum.
Mest lesið Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Viðskipti erlent Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Svara tollum Trumps: „Við munum ekki standa aðgerðarlausir hjá“ Viðskipti erlent Trump boðar „frelsun“ Bandaríkjanna Viðskipti erlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Sjá meira