NBA í nótt: Boston og Lakers töpuðu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 9. janúar 2010 11:00 Glen Davis og Al Horford í baráttunni í nótt. Mynd/AP
NBA í nótt: Boston og Lakers töpuðuBoston og LA Lakers töpuðu bæði sínum leikjum er tólf leikir fóru fram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Boston tapaði fyrir Atlanta á útivelli, 93-85, þar sem Jamal Crawford fór fyrir sínu liði í fjórða leikhluta. Þá skoraði fjórtán stig af alls átján í leiknum. Atlanta fór mikinn í þriðja leikhluta sem liðið vann, 29-15, og náði svo að koma í veg fyrir að Boston næði að koma sér aftur inn í leikinn í fjórða leikhluta. Kevin Garnett var ekki með Boston í nótt vegna hnémeiðsla en Paul Pierce var stigahæstur með 21 stig. Þeir Kendrick Perkins og Ray Allen skoruðu fimmtán hvor. Mike Bibby skoraði sautján stig fyrir Atlanta og Al Horford sautján. Portland vann Lakers, 107-98. Brandon Roy fór mikinn í leiknum og skoraði 32 stig en þetta var níundi heimasigur Portland gegn Lakers í röð. Ekkert lið í dieldinni hefur unnið fleiri leiki í röð á heimavelli gegn liðinu. Washington vann Orlando, 104-97, þó svo að byssubrandurinn Gilbert Arenas sé frá eftir að hann var dæmdur í ótímabundið leikbann. New Orleans vann New Jersey, 103-99. Chris Paul tryggði sínum mönnum sigurinn þegar hann skoraði og fiskaði um leið villu þegar 7,6 sekúndur voru eftir. Memphis vann Utah, 91-89. Zach Randolph skoraði 29 stig og tók fimmtán fráköst fyrir Memphis. Minnesota vann Indiana, 116-109. Al Jefferson skoraði 25 stig og tók tólf fráköst fyrir Minnesota. Toronto vann Philadelphia, 108-106. Chris Bosh skoraði 29 stig og tók níu fráköst fyrir Toronto og tryggði sínum mönnum sigurinn með körfu þegar 8,4 sekúndur voru eftir. Dalas vann San Antonio, 112-103. Dirk Nowitzky skoraði 26 stig, þar af sextán í fjórða leikhluta en San Antonio var tíu stigum yfir þegar hann hófst. Milwaukee vann Chicago, 96-93. Andrew Bogut skoraði 27 stig og tók þrettán fráköst og Michael Redd bætti við 24 stigum fyrir Milwaukee. Miami vann Phoenix, 109-105, þar sem Dwyane Wade var með 33 stig, níu fráköst og átta stoðsendingar. Golden State vann Sacramento. Monta Ellis var með 39 stig og sex stoðsendingar fyrir Golden State. Denver vann Cleveland, 99-97. Kenyon Martin var með nítján stig, tólf fráköst og fjórar stoðsendingar fyrir Denver og LeBron James 35 stig fyrir Cleveland.
NBA Mest lesið Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? Fótbolti Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Íslenski boltinn „Ég verð að spila“ Enski boltinn Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Fótbolti Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira