NBA: LeBron James tryggði Cleveland sigurinn á vítalínunni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. janúar 2010 09:00 Dwyane Wade og Lebron James áttust við í nótt. Mynd/AP
LeBron James skoraði úr tveimur vítaskotum 4,1 sekúndu fyrir leikslok og tryggði Cleveland Cavaliers 92-91 útisigur á Miami Heat í NBA-deildinni í nótt. Dwyane Wade fékk lokaskotið í leiknum en það geigaði. LeBron James var með 32 stig, 9 fráköst og 4 stoðsendingar fyrir Cleveland og Shaquille O'Neal skoraði 19 stig en hjá Miami var Dwyane Wade 32 stig 10 fráköst og 5 stoðsendingar. Paul Pierce var með 22 stig og Rajon Rondo bætti við 16 stigum og 12 stoðsendingum í 95-89 sigri Boston Celtics á Los Angeles Clippers. Kevin Garnett er farinn að spila á ný með Boston eftir meiðsli og var með 17 stig á 30 mínútum í nótt. Zach Randolph var með 23 stig og 19 fráköst í 99-94 sigri Memphis Grizzlies á Orlando Magic en Dwight Howard var með 27 stig, 15 fráköst og 6 varin skot hjá Orlando. Derrick Rose var með 27 stig þrátt fyrir flensu í 98-93 útisigri Chicago Bulls á San Antonio Spurs. Tony Parker var með 20 stig fyrir Spurs sem tapaði í fimmta sinn í sex leikjum. Chris Paul tryggði New Orleans Hornets 98-97 sigur á Portland með því að skora sigurkörfuna 3,8 sekúndum fyrir leikslok en Paul var með 24 stig og 12 stoðsendingar í leiknum. Úrslit leikja næturinnar í NBA-deildinni: Philadelphia-Indiana 98-109 Miami-Cleveland 91-92 Boston-LA Clippers 95-89 Memphis-Orlando 99-94 Houston-Atlanta 95-102 San Antonio-Chicago 93-98 Utah-Phoenix 124-115 Denver-Charlotte 104-93 Portland-New Orleans 97-98
NBA Mest lesið Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? Fótbolti Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Íslenski boltinn „Ég verð að spila“ Enski boltinn Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Fótbolti Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira