NBA: LeBron skoraði 40 stig - Utah jafnaði einvígið gegn Denver Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. apríl 2010 09:00 LeBron James var frábær í nótt. Mynd/AP
LeBron James skoraði 40 stig fyrir Cleveland Cavaliers sem vann 112-102 sigur á Chicago Bulls í NBA-deildinni í nótt og er þar með komið í 2-0 í einvígi liðanna í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Utah Jazz jafnaði hinsvegar metin á móti Denver með 114-111 útisigri í hinum leik næturinnar. LeBron James tók yfir leikinn fyrir Cleveland-liðið í lokin eins og hann er þekktur fyrir. Hann skoraði meðal annars ellefu stig Cavaliers í röð þegar Cleveland breytti stöðunni úr 96-93 í 107-98. LeBron var auk stiganna 40 með 8 fráköst og 8 stoðsendingar í leiknum. Joakim Noah var með 25 stig og 13 fráköst hjá Chicago, Derrick Rose bætti við 23 stigum og Luol Deng skoraði 20 stig. James var í algjörum sérflokki hjá Cleveland en Antawn Jamison kom næstur honum með 14 stig. Shaquille O'Neal var aðeins með 8 stig á 15 mínútum.Deron Williams var með 33 stig og 14 stoðsendingar þegar Utah Jazz vann 114-111 útisigur á Denver Nuggets og staðan er því 1-1 í einvíginu. Carlos Boozer var með 20 stig og 15 fráköst hjá Utah sem lék án byrjunarliðsmannanna Andrei Kirilenko og Mehmet Okur sem eru meidddir. Carmelo Anthony skoraði 32 stig fyrir Denver en hann var með 42 stig í fyrsta leiknum. Anthony hitti hinsvegar aðeins úr 9 af 25 skotum sínum. Nene Hilario var með 18 stig og Chauncey Billups skoraði 17 stig og gaf 11 stoðsendingar.Úrslitin í nótt og staðan í einvígunum: Cleveland Cavaliers-Chicago Bulls 112-102 (Staðan í einvíginu er 2-0 fyrir Cleveland) Denver Nuggets-Utah Jazz 111-114 (Staðan í einvíginu er 1-1)Í nótt mætast: Atlanta Hawks-Milwaukee Bucks [Staðan er 1-0] Boston Celtics-Miami Heat [Staðan er 1-0] Phoenix Suns-Portland Trail Blazers [Staðan er 0-1] Los Angeles Lakers-Oklahoma City Thunder [Staðan er 1-0]
NBA Mest lesið Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? Fótbolti Keppnin stoppuð eftir árekstur Leclerc Formúla 1 Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Íslenski boltinn Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Fótbolti Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira