Nýliðar Fjölnis fyrstir til að vinna Snæfell á árinu 2010 Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. febrúar 2010 20:17 Christopher Smith og Jón Sverrisson léku vel með Fjölni í kvöld. Mynd/Valli
Nýliðar Fjölnis fylgdu eftir sigrum á Grindavík og Njarðvík á undanförnum vikum með því að vinna fimm stiga sigur á Snæfelli, 69-64, í Grafarvogi í kvöld. Fjölnismenn urðu þar með fyrstir til að vinna Hólmara á árinu 2010. Snæfell byrjaði betur en Fjölnismenn tóku frumkvæðið með góðum öðrum leikhluta og létu það aldrei af hendi eftir það. Fjölnir var 39-33 yfir í hálfleik og með níu stiga forskot, 56-47, fyrir lokaleikhlutann. Fjölnisliðið hefur vaxið og dafnað undir stjórn Bárðar Eyþórssonar og sést það ekki síst á frammistöðu liðsins gegn Snæfelli í vetur. Fjölnir tapaði með 31 stigum fyrir Snæfelli í deildinni í byrjun nóvember, tapaði bikarleik liðanna í framlengingu á dögunum og vann síðan í kvöld. Snæfellingar voru fyrir leikinn búnir að vinna alla sex leiki sína árinu þar á meðal tvo síðustu leiki með 20 og 26 stigum á móti Keflvíkingum. Christopher Smith var með 25 stig og 19 fráköst fyrir Fjölni í kvöld og þeir Ægir Þór Steinarsson og Jón Sverrisson skoruðu báðir 10 stig. Sean Burton skoraði 20 stig fyrir Snæfell, Jón Ólafur Jónsson skoraði 18 stig og Hlynur Bæringsson var með 9 stig og 19 fráköst.Fjölnir-Snæfell 69-64 (39-33)Stig Fjölnis: Christopher Smith 25, Jón Sverrisson 10, Ægir Þór Steinarsson 10, Níels Dungal 7, Arnþór Freyr Guðmundsson 6, Magni Hafsteinsson 5, Tómas Heiðar Tómasson 4, Sindri Kárason 2.Stig Snæfells: Sean Burton 20, Jón Ólafur Jónsson 18, Hlynur Bæringsson 9, Sigurður Á. Þorvaldsson 7, Martins Berkis 5, Emil Þór Jóhannsson 3, Páll Fannar Helgason 2.
Dominos-deild karla Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Uppgjörið: Keflavík - Sindri 106-90| Nýliðarnir kaffærðir í seinni hálfleik Drungilas tvífótbrotinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Tryggvi í aðalhlutverki í Meistaradeildinni Kokkur í vandræðum með hráefni eldi aldrei gæðamáltíð Allt annað að sjá Helenu í dag: „Gríðarlegur kraftur í henni“ Uppgjörið: Ármann - Valur 78-89 | Valskonur aftur á sigurbraut Aðeins ein treyja toppar treyju Jordan Sammála mati Finns: „Börn eiga að fá að vera börn“ Sjá meira