LeBron var með 41 stig fyrir Cleveland og Lakers endaði taphrinuna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. janúar 2010 09:00 Shannon Brown tók upp hanskann fyrir Kobe Bryant í nótt. Mynd/AP
LeBron James var með 41 stig í 106-94 sigri Cleveland Cavaliers á Portland TrailBlazers í NBA-deildinni í körfubolta í nótt og meistararnir í Los Angeles Lakers náðu að enda tveggja leikja taphrinu sína með 95-77 sigri á Milwaukee Bucks. LeBron James hitti úr öllum átta skotum sínum í fyrri hálfleik (20 stig) og endaði leikinn á því að hitta úr 13 af 19 skotum sínum og 12 af 14 vítum í þessum 12 stiga sigri Cleveland á Portland. Shaquille O'Neal var með 11 stig og 11 fráköst fyrir Cleveland. Brandon Roy skoraði 34 stig fyrir Blazers. Kobe Bryant skoraði aðeins 12 stig og hitti bara úr 4 af 21 skoti sínu en það kom ekki að sök í 95-77 sigri Los Angeles Lakers á Milwaukee Bucks. Andrew Bynum var með 17 stig og 18 fráköst, Shannon Brown skoraði 19 stig og Jordan Farmar var með 15 af 17 stigum sínum í seinni hálfleik. Lakers-liðið hafði þarna getað tapað þriðja leiknum sínum í röð sem hafði ekki gerst í þrjú ár. Chris Paul skoraði 8 af 26 stigum sínum á síðustu þremur mínútunum í 115-110 sigri New Orleans Hornets á Washington Wizards. Paul var einnig með 14 stig í leiknum en New Orleans vann þarna sinn sjötta leik í röð. Antawn Jamison skoraði 32 stig fyrir Washington. Rajon Rondo var með þrefalda tvennu (22 stig, 13 stoðsendingar og 10 fráköst) þegar Boston Celtics vann 114-107 sigur á Toronto Raptors. Rasheed Wallace var með 29 stig fyrir Boston-liðið en Chris Bosh var með 31 stig og 13 fráköst hjá Toronto. Manu Ginobili skoraði 21 stig þegar San Antonio Spurs vann 97-85 sigur á New Jersey Nets. Þetta var 34. tap Nets-liðsns í 37 leikjum. Brook Lopez var með 28 stig fyrir New Jersey. Chris Kaman skoraði 22 stig og tók 14 fráköst í 94-84 sigri Los Angeles Clippers á Miami Heat. Baron Davis var með 14 stoðsendingar og 11 stig fyrir Clippers sem vann sinn sjötta heimaleik í röð. Dwyane Wade skoraði 24 stig fyrir Miami sem varð að sætta sig við fimmta tapið í síðustu sjö leikjum.
NBA Mest lesið Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? Fótbolti Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Íslenski boltinn „Ég verð að spila“ Enski boltinn Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Fótbolti Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira