Austrið vann nauman sigur og Dwyane Wade var valinn bestur Óskar ÓfeigurJónsson skrifar 15. febrúar 2010 09:00 Dwyane Wade var valinn bestur í Stjörnuleiknum í nótt. Mynd/AP
Lið Austurdeildarinnar vann 141-139 sigur á Vesturdeildinni í spennandi og skemmtilegum Stjörnuleik NBA-deildarinnar í Dallas í nótt en þetta var fyrsti körfuboltaleikur sögunnar sem fær meira en hundrað þúsund áhorfendur. Dwyane Wade var kosinn besti leikmaður Stjörnuleiksins en hann var með 28 stig, 11 stoðsendingar, 6 fráköst og 5 stolna bolta á 31 mínútu auk þess að dekka Carmelo Anthony í lokaskotinu sem mistókst. LeBron James átti heldur ekki slæman dag en hann var með 25 stig, 6 stoðsendingar, 5 fráköst og 4 stolna bolta og Austrið vann með 14 stigum þann tíma sem hann spilaði. Chris Bosh, leikmaður Toronto Raptors, tryggði Austrinu sigurinn með því að skora úr tveimur vítum fimm sekúndum fyrir leikslok. Bosh var með 23 stig og 10 fráköst í leiknum. Denver-mennirnir Carmelo Anthony (27 stig og 10 fráköst) og Chauncey Billups (14 af 17 stigum í fjórða) voru bestir hjá Vestrinu ásamt heimamanninum Dirk Nowitzki sem skorað 22 stig í leiknum. Ævintýramaðurinn Mark Cuban, eigandi Dallas, tilkynnti stoltur í lok þriðja leikhlutans að það hefði verið sett nýtt heimsmet með því að fá 108.713 áhorfendur á þennan leik í nótt.
NBA Mest lesið Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? Fótbolti Keppnin stoppuð eftir árekstur Leclerc Formúla 1 Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Íslenski boltinn Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Fótbolti Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira