Björgólfsfeðgar segjast hafa greitt lán sín að fullu árið 2005 og tekið ný lán Jón Hákon Halldórsson skrifar 9. mars 2010 20:57
Lán sem Samson fékk frá Búnaðarbanka Íslands hf. vegna kaupa á Landsbanka Íslands hf. var greitt að fullu ásamt áföllnum vöxtum á gjalddaga í apríl árið 2005 eða fyrir nærri 5 árum, segja Björgólfsfeðgar í yfirlýsingu sem þeir sendu frá sér nú undir kvöld. Feðgarnir Björgólfur Thor Björgólfsson og Björgólfur Guðmundsson segja í yfirlýsingunni að viðskipti Samsonar og Búnaðarbanka Íslands hafi hafist í apríl 2003 með lánssamningi að upphæð 48,3 milljónir bandaríkjadala. Þá hafi eigendur félagsins átt áralöng og farsæl viðskipti við bankann. Þeir segja að tryggingar hafi verið veittar með veði í hlutabréfum Samsonar í Landsbanka Íslands hf. að markaðsverðmæti sem hafi numið tvöfaldri lánsfjárhæðinni. Þá segja feðgarnir að þvert á yfirlýsingar fyrrum bankastjóra Búnaðarbankans þá hafi engar sjálfskuldarábyrgðir verið gefnar vegna þessa láns. Áttu frekari viðskipti við Kaupþing Þá segja þeir feðgar að Samson hafi átt í frekari lánaviðskiptum við Kaupþing eftir sameiningu þess og Búnaðarbankans vegna ýmissa annarra fjárfestinga. Tvö lán hafi verið tekin árin 2004 og 2005 sem voru að fullu greidd fyrir mitt ár 2007. Í desember 2005 hafi Samson tekið lán að fjárhæð 3,8 milljarðar króna. Tryggingar hafi verið teknar í hlutabréfum félagsins auk sjálfskuldarábyrgðar. Hluti fjárhæðarinnar hafi verið greiddur á gjalddaga í desember 2007 og þá verið gerður nýr lánasamningur um eftirstöðvar með hærri vöxtum. Áfram stóðu veðbönd á hlutabréfum félagsins og sjálfskuldarábyrgð. Gjalddagi þessa nýja láns var 10.desember 2008 en áður en sá dagur rann upp, eða í október sama ár, hafði ríkið yfirtekið hlut Samsonar í Landsbankanum sem var helsta eign félagsins og Samson hafði verið tekið til gjaldþrotaskipta. Björgólfsfeðgar segja að það sé af þessu seinni tíma láni sem Kaupþing, - nú Arion banki, hafi krafið ábyrgðaraðila um greiðslur og sé það alveg óskylt kaupum á hlutabréfum Landsbankanum fyrir sjö árum. Viðræður standa yfir um uppgjör þeirrar kröfu.
Mest lesið „Sé fyrir mér að fara vinna færri daga og öðruvísi verkefni“ Atvinnulíf Er hagstætt að taka bílalán fyrir rafmagnsbíl? Viðskipti innlent Birgir Ómar Haraldsson er látinn Viðskipti innlent Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf „Ég held bara að við sem þjóð séum ekki tilbúin í þetta“ Viðskipti innlent Kvika skráði ekki tugi þúsunda viðskipta og fær tugmilljóna sekt Viðskipti innlent Allar auglýsingar Ofurskálarinnar á einum stað Viðskipti erlent Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Viðskipti erlent Kennari kveður: „Allt gekk auðvitað út á rúntinn“ Atvinnulíf Margborgar sig að gera við stjörnu í rúðu: Carglass hefur opnað á Íslandi Samstarf Fleiri fréttir Er hagstætt að taka bílalán fyrir rafmagnsbíl? Kvika skráði ekki tugi þúsunda viðskipta og fær tugmilljóna sekt Birgir Ómar Haraldsson er látinn „Ég held bara að við sem þjóð séum ekki tilbúin í þetta“ Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Sjá meira