Kvika skráði ekki tugi þúsunda viðskipta og fær tugmilljóna sekt Árni Sæberg skrifar 9. febrúar 2026 16:32 Höfuðstöðvar Kviku eru í Borgartúni. Vísir/Lýður Valberg Kvika banki hefur gengist undir sátt við Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands vegna brota bankans á ákvæðum reglugerðar um markaði fyrir fjármálagerninga, MiFIR. Bankinn lét undir höfuð leggjast að skila svokallaðri TSR II-skýrslu vegna 73.792 viðskipta á tímabilinu 14. desember 2022 til 7. febrúar 2024 og þarf að borga tuttugu milljóna króna sekt vegna þess.
Í sáttinni, sem lesa má í heild sinni hér, segir að með bréfi dagsettu 7. febrúar 2025 hafi Kvika banki hf. lýst yfir vilja til að ljúka málinu með sátt við fjármálaeftirlitið. Á fundi fjármálaeftirlitsnefndar hinn 30. október 2025 hafi málið verið talið að fullu upplýst og forsendur til að ljúka því með sátt og greiðslu sektar að fjárhæð 20.000.000 kr. til ríkissjóðs. Mikilvæg gagnaskil Við ákvörðun sektarfjárhæðar hafi fjármálaeftirlitið horft til alvarleika brots Kviku og tilgangs tilkynningaskyldu MiFIR, en ákvæðið endurspegli mikilvægi TRS II gagnaskila fyrir fjármálaeftirlitið, meðal annars til að greina innherjasvik og markaðsmisnotkun og efla þannig traust og trúverðugleika á verðbréfamarkaði. Við mat á sektarfjárhæð hafi verið horft til þess að um hafi verið að ræða alvarlegt brot gegn ákvæði MiFIR, sem snúi að miklu magni eftirlitsgagna, eða 73.792 viðskiptum, sem ekki hafi verið skilað til fjármálaeftirlitsins yfir langan tíma, eða tæpa 14 mánuði á tímabilinu 14. desember 2022 til 7. febrúar 2024. Við ákvörðunina hafi einnig verið tekið mið af sjónarmiðum um varnaðaráhrif, skilvirkni og meðalhóf. Dráttur á meðferð Til lækkunar á sektarfjárhæð Kviku hafi verið litið til þess að meðferð málsins hjá fjármálaeftirlitinu hafi dregist af ástæðum sem ekki verði raktar til Kviku og samstarfsvilji bankans, sem hafi meðal annars falist í því að hafi gripið til úrbóta. Til hækkunar á sektarfjárhæð hafi verið litið til þess að Kvika gerði sátt við fjármálaeftirlitið árið 2021 vegna brota gegn þágildandi lögum um verðbréfaviðskipti.
Fjármálafyrirtæki Fjármálamarkaðir Seðlabankinn Kvika banki Mest lesið Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Sviptingar í stjórn Amaroq Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Viðskipti innlent Fleiri fréttir Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sjá meira